×

Biblían 1981

SÁLMARNIR 98

1
Sálmur. Syngið Drottni nýjan söng, því að hann hefir gjört dásemdarverk, hægri hönd hans hjálpaði honum og hans heilagi armleggur.
2
Drottinn hefir kunngjört hjálpræði sitt, fyrir augum þjóðanna opinberaði hann réttlæti sitt.
3
Hann minntist miskunnar sinnar við Jakob og trúfesti sinnar við Ísraels ætt. Öll endimörk jarðar sáu hjálpræði Guðs vors.
4
Látið gleðióp gjalla fyrir Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng, æpið fagnaðaróp og lofsyngið.
5
Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju með lofsöngshljómi,
6
með lúðrum og básúnuhljómi, látið gleðióp gjalla fyrir konunginum Drottni.
7
Hafið drynji og allt sem í því er, heimurinn og þeir sem í honum lifa.
8
Fljótin skulu klappa lof í lófa, fjöllin fagna öll saman
9
fyrir Drottni sem kemur til að dæma jörðina. Hann dæmir heiminn með réttlæti og þjóðirnar með réttvísi.
Icelandic Bible 1981
Icelandic Bible Icelandic Bible Society, 1981
:
Vista Skýringar