×

Biblían 2007

SÁLMARNIR 99

1
Drottinn er konungur, þjóðirnar skjálfa, hann situr uppi yfir kerúbunum, jörðin nötrar.
2
Drottinn er voldugur á Síon og hafinn yfir allar þjóðir,
3
þær lofi nafn þitt, máttugt og ógnþrungið. Heilagur er hann.
4
Voldugi konungur, þú elskar réttinn. Réttvísina stofnsettir þú, komst á rétti og réttlæti í Jakob.
5
Tignið Drottin, Guð vorn, og fallið fram fyrir fótskör hans. Heilagur er hann.
6
Móse og Aron voru meðal presta hans, Samúel meðal þeirra er ákölluðu nafn hans. Þeir hrópuðu til Drottins og hann bænheyrði þá.
7
Hann talaði til þeirra í skýstólpanum og þeir héldu boð hans og lög þau sem hann setti þeim.
8
Drottinn, Guð vor, þú bænheyrðir þá, þú reyndist þeim fyrirgefandi Guð en refsaðir þeim fyrir misgjörðir þeirra.
9
Tignið Drottin, Guð vorn, og fallið fram fyrir hans heilaga fjalli því að heilagur er Drottinn, Guð vor.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar