Þegar Drottinn sá að hann gekk nær til að virða þetta fyrir sér kallaði Guð til hans úr miðjum runnanum og sagði: „Móse, Móse.“ Hann svaraði: „Hér er ég.“
Ég er kominn niður til að bjarga henni úr greipum Egypta og leiða hana úr þessu landi og upp til lands sem er gott og víðlent, til lands sem flýtur í mjólk og hunangi, til landsvæðis Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta.
Guð sagði: „Ég mun vera með þér. Þetta skal vera þér tákn þess að ég hef sent þig: Þegar þú hefur leitt þjóðina út úr Egyptalandi munuð þið þjóna Guði á þessu fjalli.“
Móse sagði við Guð: „Ef ég kem til Ísraelsmanna og segi við þá: Guð feðra ykkar hefur sent mig til ykkar, og þeir spyrja mig: Hvert er nafn hans? hverju á ég þá að svara þeim?“
Enn fremur sagði Guð við Móse: „Svo skaltu segja við Ísraelsmenn: Drottinn, Guð feðra ykkar, Guð Abrahams, Guð Ísaks og Guð Jakobs, sendi mig til ykkar. Þetta er nafn mitt um aldur og ævi, heiti mitt frá kyni til kyns.
Farðu og stefndu saman öldungum Ísraels og segðu við þá: Drottinn, Guð feðra ykkar, birtist mér, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs, og sagði: Ég hef fylgst gaumgæfilega með ykkur og því sem ykkur hefur verið gert í Egyptalandi.
Ég hef ákveðið að leiða ykkur úr þjáningunni í Egyptalandi til lands Kanverja, Hetíta, Amoríta, Peresíta, Hevíta og Jebúsíta, til lands sem flýtur í mjólk og hunangi.
Þeir munu hlusta á þig og þú skalt fara sjálfur ásamt öldungum Ísraels til Egyptalandskonungs og segja við hann: Drottinn, Guð Hebrea, birtist okkur. Nú viljum við fara þrjár dagleiðir inn í eyðimörkina og færa Drottni, Guði okkar, sláturfórnir.
Hver kona skal biðja grannkonu sína eða aðkomukonu í húsi sínu um silfurgripi og gullgripi, einnig um klæði. Þið skuluð láta syni ykkar og dætur bera þetta; þannig skuluð þið ræna Egypta.“