Sex daga skal vinna en sjöundi dagurinn skal vera ykkur heilagur hvíldardagur, algjör hvíld vegna Drottins. Hver sem vinnur verk þann dag skal tekinn af lífi.
Þá komu þeir aftur sem gefa vildu af fúsum hug og af frjálsum vilja. Allir færðu Drottni framlag vegna vinnunnar við samfundatjaldið og þjónustunnar í því og hins helga skrúða.
Bæði karlar og konur komu. Allir komu með gjafir af fúsum vilja, armbönd, nefhringi, fingurgull, hálskeðjur og alls kyns gullgripi, allir þeir sem ætluðu að færa Drottni gull í helgigjöf.
Sérhver, sem gat lagt fram silfur eða eir, færði Drottni það að gjöf og sérhver, sem fann hjá sér akasíuvið sem var nothæfur í eitthvað sem átti að gera, kom með hann.
Sérhver karl eða kona, sem fús var til, kom með það af frjálsum vilja sem þurfti til verksins sem Drottinn hafði boðið fyrir munn Móse að unnið yrði. Ísraelsmenn komu með það til Drottins af frjálsum vilja.
Hann bjó þá hugviti til að vinna alls konar gröft í steina, listvefnað, glitvefnað úr bláum purpura, rauðum purpura, skarlati og fínu líni og dúkvefnað. Þeir geta því látið sér í hug koma hvers konar verk og unnið þau.