|
| 1 |
|
| Sonur minn, gleymdu ekki kenningu minni og hjarta þitt varðveiti ráð mín |
|
| 2 |
|
| því að langa lífdaga, farsæl ár og velgengni munu þau veita þér ríkulega. |
|
| 3 |
|
| Kærleikur og tryggð munu aldrei yfirgefa þig. Festu þau um háls þér og ritaðu þau á spjald hjarta þíns, |
|
| 4 |
|
| þá muntu hljóta hylli og góð hyggindi, jafnt í augum Guðs sem manna. |
|
| 5 |
|
| Treystu Drottni af öllu hjarta en reiddu þig ekki á eigið hyggjuvit. |
|
| 6 |
|
| Minnstu hans á öllum vegum þínum, þá mun hann gera leiðir þínar greiðar. |
|
| 7 |
|
| Þú skalt ekki þykjast vitur en óttast Drottin og forðast illt, |
|
| 8 |
|
| það er heilnæmt líkama þínum og hressing beinum þínum. |
|
| 9 |
|
| Tignaðu Drottin með eigum þínum og með frumgróða allrar uppskeru þinnar, |
|
| 10 |
|
| þá verða hlöður þínar fullar og vínberjalögurinn mun flóa úr vínþróm þínum. |
|
| 11 |
|
| Sonur minn, hafnaðu ekki leiðsögn Drottins og láttu þér ekki gremjast umvöndun hans. |
|
| 12 |
|
| Drottinn agar þann sem hann elskar og lætur þann son finna til sem hann hefur mætur á. |
|
| 13 |
|
| Sæll er sá maður sem öðlast speki, sá sem hlýtur hyggindi. |
|
| 14 |
|
| Því að betra er að afla sér hennar en silfurs og arðurinn af henni er betri en gull. |
|
| 15 |
|
| Hún er dýrmætari en perlur, allir dýrgripir þínir jafnast ekki á við hana. |
|
| 16 |
|
| Langir lífdagar eru í hægri hendi hennar, auður og sæmd í vinstri hendi hennar. |
|
| 17 |
|
| Vegir hennar eru yndislegir vegir og allar götur hennar liggja til velfarnaðar. |
|
| 18 |
|
| Hún er tré lífsins þeim sem höndla hana og sæll er hver sá er heldur fast í hana. |
|
| 19 |
|
| Drottinn grundvallaði jörðina með visku og kom himninum fyrir af speki. |
|
| 20 |
|
| Fyrir þekkingu hans mynduðust hafdjúpin og döggin drýpur úr skýjunum. |
|
| 21 |
|
| Sonur minn, varðveittu visku og gætni, láttu þær ekki víkja frá augum þínum, |
|
| 22 |
|
| þá verða þær sálu þinni til lífs og hálsi þínum til prýði. |
|
| 23 |
|
| Þá muntu ganga veg þinn óhultur og ekki hrasa. |
|
| 24 |
|
| Þegar þú leggst til hvíldar þarftu ekki að hræðast og sofnir þú verður svefninn vær. |
|
| 25 |
|
| Þú þarft hvorki að kvíða felmtrinu né eyðingu hinna ranglátu þegar hún dynur yfir |
|
| 26 |
|
| því að Drottinn verður athvarf þitt og varðveitir fót þinn svo að hann verði ekki fanginn. |
|
| 27 |
|
| Synjaðu ekki góðs þeim sem þarfnast ef það er á þínu valdi að veita það. |
|
| 28 |
|
| Segðu ekki við náunga þinn: „Farðu og komdu aftur. Á morgun skal ég gefa þér,“ ef þú átt það til. |
|
| 29 |
|
| Bruggaðu ekki vélræði gegn náunga þínum meðan hann dvelst öruggur hjá þér. |
|
| 30 |
|
| Deildu ekki við neinn að ástæðulausu hafi hann ekki gert neitt á hlut þinn. |
|
| 31 |
|
| Öfundaðu ekki ofbeldismanninn og sækstu ekki eftir neinum verkum hans. |
|
| 32 |
|
| Því að andstyggð er sá Drottni sem afvega fer en ráðvandir menn eru alúðarvinir hans. |
|
| 33 |
|
| Bölvun Drottins er yfir húsi hins rangláta en bústað réttlátra blessar hann. |
|
| 34 |
|
| Háðska menn hæðir hann en hógværum veitir hann náð. |
|
| 35 |
|
| Vitrir menn hljóta heiður en heimskingjar bera smán úr býtum. |
|
|
: |
| 1 | | 2 | | 3 | | 4 | | 5 | | 6 | | 7 | | 8 | | 9 | | 10 | | 11 | | 12 | | 13 | | 14 | | 15 | | 16 | | 17 | | 18 | | 19 | | 20 | | 21 | | 22 | | 23 | | 24 | | 25 | | 26 | | 27 | | 28 | | 29 | | 30 | | 31 | | 32 | | 33 | | 34 | | 35 | 1
1
1 |
|
|---|
|
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/proverbs/003.mp3
31
3