|
| 1 |
|
| Heyr, spekin kallar. Viskan hefur upp raust sína. |
|
| 2 |
|
| Uppi á hæðunum, við veginn og við krossgöturnar stendur hún, |
|
| 3 |
|
| við hliðin út úr borginni, þar sem gengið er inn, kallar hún hástöfum: |
|
| 4 |
|
| Til yðar tala ég, menn, og rödd minni er beint til mannanna barna. |
|
| 5 |
|
| Þér óreyndu, lærið hyggindi, og þér heimskingjar, lærið skynsemi. |
|
| 6 |
|
| Hlýðið á því að ég boða það sem mikilvægt er og varir mínar tjá það sem rétt er. |
|
| 7 |
|
| Sannleikur kemur af munni mínum og lygi er viðbjóður vörum mínum. |
|
| 8 |
|
| Réttvísi boða öll orð munns míns, í þeim er hvorki fals né fláræði. |
|
| 9 |
|
| Öll eru þau auðskilin hinum skilningsríka og augljós þeim sem hlotið hefur þekkingu. |
|
| 10 |
|
| Þiggið leiðsögn mína fremur en silfur og fræðslu mína fremur en skíragull. |
|
| 11 |
|
| Viska er betri en perlur, engir fjársjóðir jafnast á við hana. |
|
| 12 |
|
| Ég, spekin, dvelst hjá viskunni, hjá mér býr dómgreind og þekking. |
|
| 13 |
|
| Að óttast Drottin er að hata hið illa, hroka og dramb, meinfýsi og ósannsögli hata ég. |
|
| 14 |
|
| Ráð veiti ég og velgengni, hjá mér er hyggnin og minn er mátturinn. |
|
| 15 |
|
| Vegna mín halda konungar völdum og valdhafar úrskurða það sem rétt er. |
|
| 16 |
|
| Vegna mín stjórna menn og hljóta mannaforráð, allir valdsmenn veraldar. |
|
| 17 |
|
| Ég elska þá sem mig elska og þeir finna mig sem leita mín. |
|
| 18 |
|
| Auður og sæmd eru hjá mér, varanlegir sjóðir og velgengni. |
|
| 19 |
|
| Ávextir mínir eru betri en gull og gimsteinar og afrakstur minn betri en hreint silfur. |
|
| 20 |
|
| Ég geng á götu réttlætisins og stigum réttsýninnar. |
|
| 21 |
|
| Ég færi þeim sanna auðlegð sem elska mig og fylli sjóði þeirra. |
|
| 22 |
|
| Drottinn skapaði mig í upphafi, á undan öðrum verkum sínum, í árdaga. |
|
| 23 |
|
| Fyrir óralöngu var ég mynduð, í upphafi, áður en jörðin varð til. |
|
| 24 |
|
| Ég fæddist áður en hafdjúpin urðu til, þegar engar vatnslindir voru til. |
|
| 25 |
|
| Áður en fjöllunum var hleypt niður, á undan hæðunum fæddist ég, |
|
| 26 |
|
| áður en hann skapaði lönd og akra og fyrstu moldarköggla jarðar. |
|
| 27 |
|
| Þegar hann þandi út himininn var ég þar, þegar hann steypti hvelfingunni yfir hafdjúpin, |
|
| 28 |
|
| þegar hann festi upp skýin af mætti sínum og lét uppsprettur undirdjúpanna streyma fram, |
|
| 29 |
|
| þegar hann setti hafinu skorður til þess að vötnin staðnæmdust þar sem hann bauð, þegar hann ákvað grundvöll jarðarinnar, |
|
| 30 |
|
| þá var ég með í ráðum við hlið honum, var yndi hans dag hvern og lék mér fyrir augliti hans alla tíma, |
|
| 31 |
|
| ég lék mér í byggðum heimi hans og fagnaði með mannanna börnum. |
|
| 32 |
|
| Hlýðið mér, synir, því að sælir eru þeir sem halda sig á vegum mínum. |
|
| 33 |
|
| Hlustið á hvatningu mína, svo að þér verðið vitrir, og hafnið henni ekki. |
|
| 34 |
|
| Sæll er sá maður sem hlýðir á mig, kemur daglega að hliðum mínum og dvelst við dyr mínar. |
|
| 35 |
|
| Sá sem finnur mig finnur lífið og öðlast velþóknun Drottins. |
|
| 36 |
|
| Sá sem missir mín vinnur sjálfum sér mein. Þeir sem hata mig elska dauðann. |
|
|
: |
| 1 | | 2 | | 3 | | 4 | | 5 | | 6 | | 7 | | 8 | | 9 | | 10 | | 11 | | 12 | | 13 | | 14 | | 15 | | 16 | | 17 | | 18 | | 19 | | 20 | | 21 | | 22 | | 23 | | 24 | | 25 | | 26 | | 27 | | 28 | | 29 | | 30 | | 31 | | 32 | | 33 | | 34 | | 35 | | 36 | 1
1
1 |
|
|---|
|
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/proverbs/008.mp3
31
8