Allt hefur hann gert hagfellt á sínum tíma, jafnvel eilífðina hefur hann lagt í brjóst þeirra en maðurinn fær ekki skilið að fullu það verk sem Guð vinnur.
Ég komst að raun um að allt sem Guð gerir stendur að eilífu, við það er engu að bæta og af því verður ekkert tekið. Guð hefur hagað því svo, til þess að menn virtu hann.
Því að örlög manns og örlög skepnu eru hin sömu: Eins og skepnan deyr, svo deyr og maðurinn og allt hefur sama andann og yfirburði hefur maðurinn enga fram yfir skepnuna því að allt er hégómi.
Þannig sá ég að ekkert er betra en að maðurinn gleðji sig við verk sín því að það er hlutskipti hans. Hver kemur honum svo langt að hann sjái það sem verður eftir hans dag?