Leyfðu ekki munni þínum að baka líkama þínum sekt og segðu ekki við sendiboðann: Það var fljótfærni. Hvers vegna á Guð að reiðast orðum þínum og skemma verk handa þinna?
Sjáir þú hinn snauða undirokaðan og að rétti og réttlæti er hallað í héraðinu, þá furða þú þig ekki á því athæfi því að hár vakir yfir háum og hinn hæsti yfir þeim öllum.
Eins og hann kom af móðurlífi, eins mun hann fara burt aftur nakinn eins og hann kom og hann mun ekkert taka með sér fyrir strit sitt, sem hann fái borið í hendi sér.
Það sem mér hefur virst gott og fagurt er að maðurinn eti og drekki og njóti fagnaðar af öllu striti sínu því er hann streitist við undir sólinni alla ævidaga sína, þá er Guð gefur honum, því að það er hlutdeild hans.
Þegar Guð gefur einhverjum ríkidæmi og auðæfi og gerir hann færan um að njóta þess, taka hlutdeild sína og að gleðjast yfir starfi sínu, þá er það einnig Guðs gjöf.