Biblían 1981
|
| 1 |
| Hversu fagrir eru fætur þínir í ilskónum, þú höfðingjadóttir! Ávali mjaðma þinna er eins og hálsmen, handaverk listasmiðs, |
| 2 |
| skaut þitt kringlótt skál, er eigi má skorta vínblönduna, kviður þinn hveitibingur, kringsettur liljum, |
| 3 |
| brjóst þín eins og tveir rádýrskálfar, skóggeitar-tvíburar. |
| 4 |
| Háls þinn er eins og fílabeinsturn, augu þín sem tjarnir hjá Hesbon, við hlið Batrabbím, nef þitt eins og Líbanonsturninn, sem veit að Damaskus. |
| 5 |
| Höfuðið á þér er eins og Karmel og höfuðhár þitt sem purpuri, konungurinn er fjötraður af lokkunum. |
| 6 |
| Hversu fögur ertu og hversu yndisleg ertu, ástin mín, í yndisnautnunum. |
| 7 |
| Vöxtur þinn líkist pálmavið og brjóst þín vínberjum. |
| 8 |
| Ég hugsa: Ég verð að fara upp í pálmann, grípa í greinar hans. Ó, að brjóst þín mættu líkjast berjum vínviðarins og ilmurinn úr nefi þínu eplum, |
| 9 |
| og gómur þinn góðu víni, sem unnusta mínum rennur liðugt niður, líðandi yfir varir og tennur. |
| 10 |
| Ég heyri unnusta mínum, og til mín er löngun hans. |
| 11 |
| Kom, unnusti minn, við skulum fara út á víðan vang, hafast við meðal kypurblómanna. |
| 12 |
| Við skulum fara snemma upp í víngarðana, sjá, hvort vínviðurinn er farinn að bruma, hvort blómin eru farin að ljúkast upp, hvort granateplatrén eru farin að blómgast. Þar vil ég gefa þér ást mína. |
| 13 |
| Ástareplin anga og yfir dyrum okkar eru alls konar dýrir ávextir, nýir og gamlir, unnusti minn, ég hefi geymt þér þá. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/songofsolomon/007.mp3
8
7