1
Boðskapur um Babýlon sem Jesaja Amotssyni birtist:
2
Reisið gunnfána á gróðurvana fjallstindi. Hrópið til þeirra hárri röddu. Bendið þeim að koma gegnum hlið höfðingjanna.
3
Ég kvaddi sjálfur út minn vígða her, kallaði hetjur mínar til að vinna verk reiði minnar, þá sem fagna frammi fyrir hátign minni.
4
Heyrið, gnýr er á fjöllunum eins og frá mannmergð, hark frá konungsríkjum, þjóðum sem safnast saman. Drottinn allsherjar kannar liðið, vígbúinn herinn.
5
Þeir koma frá fjarlægu landi, frá ystu mörkum himins, Drottinn og vopn reiði hans, til að eyða landið allt.
6
Kveinið því að dagur Drottins er í nánd. Hann kemur sem eyðing frá Hinum almáttka.
7
Þess vegna verða allar hendur lémagna og öllum fellst hugur.
8
Þeir verða skelfingu lostnir, helteknir krampa og kvölum og engjast eins og jóðsjúk kona. Þeir stara skelfdir hver á annan, rauðglóandi í framan.
9
Hinn hræðilegi dagur Drottins kemur með reiði og logandi heift til að gera jörðina að auðn og afmá syndara af henni.
10
Stjörnur himins og stjörnumerki munu ekki láta ljós sitt skína, sólin myrkvast í dagrenningu og tunglið ber enga birtu.
11
Ég mun refsa heiminum fyrir illskuna og óguðlegum fyrir synd þeirra. Ég mun binda enda á hroka stærilátra og yfirlæti harðstjóranna mun ég lægja.
12
Ég mun gera menn fágætari en skíragull og mannfólk sjaldséðara en Ófírgull.
13
Himinninn mun skjálfa og jörðin hnikast úr stað vegna reiði Drottins allsherjar á degi brennandi heiftar hans.
14
Eins og fæld gasella, eins og fjárhópur án smala, mun sérhver snúa til sinnar þjóðar, heim í sitt eigið land.
15
Hver sem fyrir verður mun lagður í gegn, hver sem næst mun falla fyrir sverði.
16
Ungbörn þeirra verða barin til bana fyrir augum þeirra, hús þeirra rænd, eiginkonum þeirra nauðgað.
17
Já, ég æsi Meda gegn þeim. Þeir meta silfur einskis og girnast ekki gull.
18
Bogar þeirra munu fella æskumenn til jarðar, þeir þyrma ekki ávexti móðurlífsins og líta ekki börn miskunnaraugum.
19
Fyrir Babýlon, prýði konungsríkja, skartinu sem Kaldear hreykja sér af, mun fara eins og Sódómu og Gómorru þegar Guð umturnaði þeim.
20
Hún verður aldrei framar mönnum byggð, enginn sest þar að, kynslóð eftir kynslóð. Enginn hirðingi mun tjalda þar né hjarðmaður hvíla þar hjörð sína.
21
En eyðimerkurdýr munu hafast þar við og uglur fylla húsin. Strútar munu setjast þar að og púkar stökkva um.
22
Hýenur munu væla í virkjunum og sjakalar í gleðisölunum. Tími hennar færist nær, dögum hennar mun ekki fjölga.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society