Varnarvirkið í Efraím mun hverfa og konungdómurinn frá Damaskus og fyrir leifum Arams mun fara eins og vegsemd Ísraelsmanna, segir Drottinn allsherjar.
En þar verður eftirtekja eins og þegar ólífutré er skekið, tvær eða þrjár ólífur á efstu greinum, fjórar eða fimm í limi ávaxtatrésins, segir Drottinn, Guð Ísraels.
Á þeim degi munu víggirtar borgir hans verða eins og mannauðar borgir sem Hevítar og Amorítar yfirgáfu vegna framsóknar Ísraelsmanna, og landið verða að eyðimörk.
Þú hefur gleymt Guði hjálpræðis þíns og minnist ekki klettsins sem er hæli þitt því að þú gróðursetur garða handa Hinum yndislega og plantar þar framandi teinungum,
kemur þeim til sama dag og þú setur þá niður og lætur þá blómstra morguninn sem þú plantar þeim. Uppskeran er horfin á degi sjúkdóms og óbærilegra kvala.