Biblían 1981
|
| 1 |
| Sjá, Drottinn tæmir jörðina og eyðir hana, hann umhverfir ásjónu hennar og tvístrar íbúum hennar. |
| 2 |
| Eitt gengur yfir prest og alþýðu, yfir húsbónda og þjón, yfir húsfreyju og þernu, yfir seljanda og kaupanda, yfir lánsala og lánþega, yfir okrarann og skuldunaut hans. |
| 3 |
| Jörðin skal verða altæmd og gjörsamlega rænd, því að Drottinn hefir talað þetta. |
| 4 |
| Jörðin viknar og kiknar, heimur bliknar og kiknar, tignarmenni lýðsins á jörðu blikna. |
| 5 |
| Jörðin vanhelgast undir fótum þeirra, er á henni búa, því að þeir hafa brotið lögin, brjálað boðorðunum og rofið sáttmálann eilífa. |
| 6 |
| Þess vegna eyðir bölvun jörðinni og íbúar hennar gjalda fyrir það. Þess vegna farast íbúar jarðarinnar af hita, svo að fátt manna er eftir orðið. |
| 7 |
| Vínberjalögurinn sýtir, vínviðurinn visnar, nú andvarpa allir þeir sem áður voru af hjarta glaðir. |
| 8 |
| Gleðihljóð bumbnanna er þagnað, hávaði hinna glaðværu hættur, gleðiómur gígjunnar þagnaður. |
| 9 |
| Menn sitja ekki syngjandi að víndrykkju, þeim sem drekka áfengan drykk, finnst hann beiskur. |
| 10 |
| Borgirnar eru lagðar í eyði, öll hús lokuð, svo að ekki verður inn komist. |
| 11 |
| Á strætunum er harmakvein af vínskortinum, öll gleði er horfin, fögnuður landsins flúinn. |
| 12 |
| Auðnin ein er eftir í borginni, borgarhliðin eru mölbrotin. |
| 13 |
| Því að á jörðinni miðri, á meðal þjóðanna, skal svo fara sem þá er olíuviður er skekinn, sem við eftirtíning að loknum vínberjalestri. |
| 14 |
| Þeir hefja upp raust sína og fagna. Yfir hátign Drottins gjalla gleðiópin í vestri. |
| 15 |
| Vegsamið þess vegna Drottin á austurvegum, nafn Drottins, Ísraels Guðs, á ströndum hafsins! |
| 16 |
| Frá ysta jaðri jarðarinnar heyrðum vér lofsöngva: “Dýrð sé hinum réttláta!” En ég sagði: “Æ, mig auman! Æ, mig auman! Vei mér!” Ránsmenn ræna, ránum ránsmenn ræna. |
| 17 |
| Geigur, gröf og gildra koma yfir þig, jarðarbúi. |
| 18 |
| Sá sem flýr undan hinum geigvæna gný, fellur í gröfina, og sá sem kemst upp úr gröfinni, festist í gildrunni, því að flóðgáttirnar á hæðum ljúkast upp og grundvöllur jarðarinnar skelfur. |
| 19 |
| Jörðin brestur og gnestur, jörðin rofnar og klofnar, jörðin riðar og iðar. |
| 20 |
| Jörðin skjögrar eins og drukkinn maður, henni svipar til og frá eins og vökuskýli. Misgjörð hennar liggur þungt á henni, hún hnígur og fær eigi risið upp framar. |
| 21 |
| Á þeim degi mun Drottinn vitja hers hæðanna á hæðum og konunga jarðarinnar á jörðu. |
| 22 |
| Þeim skal varpað verða í gryfju, eins og fjötruðum bandingjum, og þeir skulu byrgðir verða í dýflissu. Eftir langa stund skal þeim hegnt verða. |
| 23 |
| Þá mun máninn fyrirverða sig og sólin blygðast sín, því að Drottinn allsherjar sest að völdum á Síonfjalli og í Jerúsalem, og fyrir augliti öldunga hans mun dýrð ljóma. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic1981/isaiah/024.mp3
66
24