×

Biblían 2007

JESAJA 25

1
Drottinn, þú ert minn Guð. Ég vegsama þig, ég lofa nafn þitt því að þú hefur unnið furðuverk, framkvæmt löngu ráðin ráð sem í engu brugðust.
2
Því að þú gerðir borgina að grjóthrúgu, hið rammgera virki að rúst, hallir hrokafullra eru ekki framar virki, það verður aldrei endurreist.
3
Þess vegna mun voldug þjóð heiðra þig, borg ofstopafullra þjóða sýna þér lotningu,
4
því að þú varst vörn lítilmagnans, vörn hins þurfandi í þrengingum hans, skjól í skúrum, hlíf í hita. Andi ofríkismanna er eins og kuldaskúrir að vetri,
5
breyskja í skrælnuðu landi. Þú lægir háreysti hrokafullra. Eins og breyskja hverfur fyrir skugga af skýi hljóðnar söngur ofríkismannanna.
6
Drottinn allsherjar mun á þessu fjalli búa öllum þjóðum veislu, veislu með réttum fljótandi í olíu og með dreggjavíni, með réttum úr olíu og merg og skírðu dreggjavíni.
7
Á þessu fjalli, fyrir framan fortjaldið, sem er hula öllum þjóðum og forhengi öllum lýðum,
8
mun hann afmá dauðann að eilífu. Drottinn Guð mun þerra tárin af hverri ásjónu og afmá smán lýðs síns af allri jörðinni því að Drottinn hefur talað.
9
Á þeim degi verður sagt: Þessi er Guð vor sem vér höfum vonað á og hann mun frelsa oss. Þessi er Drottinn sem vér höfum vonað á, fögnum og gleðjumst yfir hjálp hans
10
því að hönd Drottins mun hvíla á þessu fjalli. Móab verður fótum troðinn þar sem hann er, líkt og hálmur sem er troðinn niður í forarvilpu.
11
Þótt hann teygi út hendurnar í forinni eins og sundmaður gerir á sundi mun Drottinn lægja hroka hans þrátt fyrir fálm handa hans.
12
Háa virkismúra þína mun hann brjóta niður, hann mun jafna þá við jörðu, gera þá að dufti.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar