Biblían 2007
|
| 1 |
| Vei þeim sem fara til Egyptalands í liðsbón, sem reiða sig á hesta og treysta á hervagna af því að þeir eru margir og á riddara af því að þeir eru fjölmargir en líta ekki til Hins heilaga í Ísrael og leita ekki svara hjá Drottni. |
| 2 |
| En einnig hann er vitur, lét ógæfu henda og tók ekki orð sín aftur. Hann reis gegn ætt illmenna og gegn hjálp illvirkja. |
| 3 |
| Egyptar eru menn en enginn Guð, hestar þeirra eru hold en ekki andi. Þegar Drottinn réttir út hönd sína hrasar sá sem hjálpar og fellur sá sem hjálpa skal svo að þeir farast báðir, hvor með öðrum. |
| 4 |
| Því að svo segir Drottinn við mig: Eins og ljón eða ljónshvolpur urrar yfir bráð sinni og óttast ekki hóp fjárhirða sem stefnt er gegn honum, skelfist hvorki hróp þeirra né guggnar fyrir háreysti þeirra, eins mun Drottinn allsherjar stíga niður til að herja á Síonarfjall og Síonarhæð. |
| 5 |
| Eins og fuglar sem sveima yfir mun Drottinn allsherjar vernda Jerúsalem, hann mun vernda hana og frelsa, verja og bjarga. |
| 6 |
| Hverfið aftur til hans sem Ísraelsmenn hafa fallið svo djúpt frá |
| 7 |
| því að á þeim degi mun hver og einn hafna skurðgoðum sínum úr silfri og gulli sem þér gerðuð með syndugum höndum. |
| 8 |
| Assúr mun falla fyrir sverði, þó ekki sverði manns, sverðið mun eyða honum, þó ekki sverð manns. Assúr mun flýja undan sverði en æskumenn hans verða hnepptir í ánauð. |
| 9 |
| Bjarg hans mun farast af ótta og höfðingjar hans hlaupast undan merkjum, segir Drottinn sem á eld á Síon og eldstæði í Jerúsalem. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/isaiah/031.mp3
66
31