Biblían 2007
|
| 1 |
| Sjö konur munu þrífa í sama mann á þeim degi og segja: „Vér skulum sjálfar fæða oss og klæða, leyf oss aðeins að bera nafn þitt, tak smánina frá oss.“ |
| 2 |
| Á þeim degi verður kvistur Drottins fagur og vegsamlegur og ávöxtur landsins stolt og vegsemd þeirra í Ísrael sem af komast. |
| 3 |
| Þeir sem af lifa á Síon og þeir, sem eftir verða í Jerúsalem, verða nefndir heilagir, allir sem skráðir eru til lífsins í Jerúsalem. |
| 4 |
| Þegar Drottinn hefur þvegið óhreinindin af Síonardætrum og skolað burt blóðið úr Jerúsalem með dóms- og hreinsunaranda, |
| 5 |
| þá skapar Drottinn ský um daga og rjúkandi og bjartan eldsloga um nætur yfir öllu Síonarfjalli þeim sem þar safnast saman. Því að yfir allri dýrðinni verður hlíf. |
| 6 |
| Laufþak mun veita forsælu í hita dagsins og hæli og skjól í stormi og regni. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/isaiah/004.mp3
66
4