Hughreystið Jerúsalem og boðið henni að áþján hennar sé á enda, að sekt hennar sé goldin, að hún hafi fengið tvöfalt af hendi Drottins fyrir allar syndir sínar.
Stíg upp á hátt fjall, Síon, fagnaðarboði. Hef upp raust þína kröftuglega, Jerúsalem, fagnaðarboði. Hef upp raustina og óttast eigi, seg borgunum í Júda:
Hver mældi vötnin í lófa sínum og afmarkaði himininn með spönn sinni? Hver mældi duft jarðar í mælikeri, vó fjöllin á reislu og hæðirnar á vogarskálum?
Það er hann sem situr hátt yfir jarðarkringlunni en íbúar hennar líkjast engisprettum, hann þenur himininn út eins og voð og slær honum sundur eins og tjaldi til að búa í.
Þeir eru varla gróðursettir, varla sánir, stofn þeirra hefur varla fest rætur í jörð, fyrr en hann andar á þá og þeir skrælna og stormurinn feykir þeim burt eins og hismi.
Hefjið upp augun og horfið til himins. Hver hefur skapað allt þetta? Það er hann sem kannar her stjarnanna, allan með tölu, nefnir þær allar með nafni. Þar sem hann er mikill að mætti og voldugur að afli verður engrar vant.
Veistu ekki eða hefur þú ekki heyrt að Drottinn er eilífur Guð sem skapaði endimörk jarðar? Hann þreytist ekki, hann lýist ekki, viska hans er órannsakanleg.