En hlusta nú, sællífa kona, sem situr áhyggjulaus í hásæti og hugsar með sjálfri þér: „Ég og engin önnur. Ég mun aldrei sitja í ekkjudómi, aldrei reyna hvað barnleysi er.“
En hvort tveggja mun yfir þig koma, óvænt, á einum og sama degi. Þú verður bæði barnlaus og ekkja, það mun henda þig í fullum mæli, þrátt fyrir margvíslega galdra þína og mátt særinga þinna.
Þú treystir kunnáttu þinni, sagðir: „Enginn sér til mín.“ Kunnátta þín og þekking leiddi þig afvega svo að þú sagðir með sjálfri þér: „Ég og engin önnur.“
En yfir þig mun koma ógæfa, þá kanntu engan varnargaldur, tortíming dynur yfir þig, þá getur þú ekki varnað henni með yfirbót, eyðing, sem þú sérð ekki fyrir, kemur óvænt yfir þig.
Þú þreyttist á fjölmörgum ráðgjöfum, þeir gangi nú fram. Nú skulu stjörnuspekingar koma til liðs, þeir sem stara á stjörnurnar og boða þér við nýtt tungl hvað yfir þig muni koma.