Fagna þú, óbyrja, sem ekki hefur fætt, hef upp fagnaðaróp og hrópa af gleði, þú sem aldrei hefur haft hríðir, því að börn hinnar yfirgefnu verða fleiri en giftu konunnar, segir Drottinn.
Lengdu stögin og festu hælana vel því að þú munt breiðast út til suðurs og norðurs og niðjar þínir munu leggja undir sig þjóðir og setjast að í auðum borgum.
Óttast ekki því að þú verður ekki til skammar, óttast ekki niðurlægingu því að þú verður ekki auðmýkt. Þú skalt gleyma vanvirðu æsku þinnar og ekki framar minnast smánar ekkjudóms þíns
því að skapari þinn er eiginmaður þinn, Drottinn allsherjar er nafn hans og Hinn heilagi Ísraels er lausnari þinn, hann sem nefnist Guð allrar jarðarinnar.
Því að þótt fjöllin bifist og hæðirnar haggist mun kærleikur minn til þín ekki bifast og friðarsáttmáli minn ekki haggast, segir Drottinn sem miskunnar þér.
Ekkert vopn, sem smíðað verður gegn þér, skal reynast sigursælt og sérhverja tungu, sem mælir gegn þér, skaltu dæma seka. Þetta er hlutskipti þjóna Drottins og sá réttur sem þeir fá frá mér, segir Drottinn.