Sæll er sá maður sem breytir þannig og heldur fast við það að halda hvíldardaginn án þess að vanhelga hann og varðveitir hönd sína frá því að gera illt.
þeim gef ég í húsi mínu og innan múra minna minnismerki og nafn sem er betra en synir og dætur. Eilíft nafn vil ég gefa þeim, það er aldrei mun afmáð verða.
Og útlendinga, sem gengnir eru Drottni á hönd til að þjóna honum og elska nafn hans, til að verða þjónar hans, alla þá sem halda hvíldardaginn og vanhelga hann ekki og halda sér fast við sáttmála minn,
mun ég leiða til míns heilaga fjalls og gleðja þá í bænahúsi mínu. Brennifórnir þeirra og sláturfórnir munu þóknast mér á altari mínu því að hús mitt skal nefnast bænahús fyrir allar þjóðir.
En þetta eru gráðugir hundar sem aldrei fá fylli sína, þeir eru fjárhirðar sem eru skilningssljóir og fara hver sína leið, allir sem einn elta þeir eigin gróða.