×

Biblían 2007

JESAJA 61

1
Andi Drottins er yfir mér því að Drottinn hefur smurt mig. Hann hefur sent mig til að flytja fátækum gleðilegan boðskap, til að græða þá sem hafa sundurmarin hjörtu, boða föngum lausn og fjötruðum frelsi,
2
til að boða náðarár Drottins og hefndardag Guðs vors, til að hugga þá sem hryggir eru
3
og setja höfuðdjásn í stað ösku á syrgjendur í Síon, fagnaðarolíu í stað sorgarklæða, skartklæði í stað hugleysis. Þeir verða nefndir réttlætiseikur, garður Drottins sem birtir dýrð hans.
4
Þeir munu endurreisa fornar rústir, reisa það við sem féll fyrir löngu, endurbyggja eyddar borgir sem legið hafa í rústum kynslóð eftir kynslóð.
5
Framandi menn munu koma og gæta hjarða yðar, útlendingar vinna á ökrum yðar og í víngörðum
6
en þér verðið nefndir prestar Drottins og kallaðir þjónar Guðs vors. Þér munuð njóta góðs af auði annarra þjóða og hljóta vegsemd af fjársjóðum þeirra.
7
Þar sem smán þeirra tvöfaldaðist og háð og spott varð hlutskipti þeirra skulu þeir fá tvöfalda hlutdeild í landi sínu og ævarandi gleði mun hlotnast þeim.
8
Því að ég, Drottinn, elska réttlæti en hata rán og svik, ég mun launa þeim af trúfesti og gera við þá ævarandi sáttmála.
9
Niðjar þeirra verða þekktir meðal þjóðanna og börn þeirra meðal þjóðflokkanna. Allir, sem sjá þá, munu skilja að þeir eru niðjarnir sem Drottinn hefur blessað.
10
Ég gleðst yfir Drottni, ég fagna yfir Guði mínum því að hann bjó mig klæðum hjálpræðisins, sveipaði mig skikkju réttlætisins. Eins og brúðgumi setur upp höfuðdúk sinn og brúður býr sig skarti sínu
11
og eins og jörðin gefur gróðrinum vöxtinn og garður lætur frækornin spíra mun Drottinn Guð láta réttlæti dafna og orðstír frammi fyrir öllum þjóðum.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar