Biblían 2007
|
| 1 |
| Ó, að þú sviptir himninum sundur og stigir niður svo að fjöllin nötruðu fyrir augliti þínu eins og þegar eldur kveikir í hrísi eða eldur kemur vatni til að vella, til að gera fjandmönnum nafn þitt kunnugt. Þjóðirnar munu skjálfa fyrir augliti þínu |
| 2 |
| þegar þú vinnur ógurleg verk sem koma oss að óvörum. Þú steigst niður og fjöllin nötruðu fyrir augliti þínu. |
| 3 |
| Enginn hefur hlýtt á, ekki lagt við hlustir, ekkert auga hefur séð neinn Guð nema þig er kemur þeim til hjálpar sem á hann vona. |
| 4 |
| Þú kemur til móts við þá sem ástunda réttlæti, minnast vega þinna. En þú reiddist því að vér syndguðum, risum gegn þér frá fyrstu tíð |
| 5 |
| og urðum allir eins og óhreinn maður, allar dygðir vorar eins og saurgað klæði, vér visnuðum allir sem laufblað og sekt vor feykti oss burt eins og vindur. |
| 6 |
| Enginn ákallar nafn þitt, hreyfir sig eða reynir að halda sér fast við þig því að þú huldir auglit þitt fyrir oss og ofurseldir oss vegna synda vorra. |
| 7 |
| En þú, Drottinn, ert faðir vor, vér erum leir, þú hefur mótað oss og allir erum vér handaverk þín. |
| 8 |
| Drottinn, reiðstu ekki um of og minnstu ekki sektar vorrar um aldur. Lít til vor, vér erum allir þjóð þín. |
| 9 |
| Hinar heilögu borgir þínar voru í eyði lagðar, Síon varð að eyðimörk, Jerúsalem að auðn. |
| 10 |
| Hið heilaga og dýrlega hús vort, þar sem feður vorir vegsömuðu þig, varð eldi að bráð og allt, sem oss var dýrmætt, er orðið að rústum. |
| 11 |
| Ætlar þú samt að vera oss fjarri, vera hljóður og hegna oss takmarkalaust? |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/isaiah/064.mp3
66
64