×

Biblían 2007

JESAJA 9

1
Sú þjóð, sem í myrkri gengur, sér mikið ljós. Yfir þá sem búa í landi náttmyrkranna skín ljós.
2
Þú eykur stórum fögnuðinn, gerir gleðina mikla. Menn gleðjast fyrir augliti þínu eins og þegar uppskeru er fagnað, eins og menn fagna þegar herfangi er skipt.
3
Því að ok þeirra, klafann á herðum þeirra, barefli þess sem kúgar þá hefur þú brotið í sundur eins og á degi Midíans.
4
Öll harkmikil hermannastígvél og allar blóðstokknar skikkjur skulu brenndar og verða eldsmatur.
5
Því að barn er oss fætt, sonur er oss gefinn. Á hans herðum skal höfðingjadómurinn hvíla, hann skal nefndur: Undraráðgjafi, Guðhetja, Eilífðarfaðir, Friðarhöfðingi.
6
Mikill skal höfðingjadómurinn verða og friðurinn engan enda taka á hásæti Davíðs og í ríki hans. Hann mun reisa það og efla með réttvísi og réttlæti, héðan í frá og að eilífu. Vandlæting Drottins allsherjar mun þessu til vegar koma.
7
Drottinn sendi orð gegn Jakobi, því laust niður í Ísrael
8
og allt fólkið varð þess áskynja, íbúar Efraíms og Samaríu sem sögðu með hroka og stærilæti í hjarta:
9
„Tígulsteinarnir hrundu en vér byggjum aftur úr höggnu grjóti. Mórberjatrén voru felld en vér setjum sedrustré í þeirra stað.“
10
Þá efldi Drottinn fjandmann þeirra gegn þeim og æsti upp óvini þeirra:
11
Aramea að austan og Filistea að vestan og þeir gleyptu Ísrael með gapandi gini. En samt sefaðist reiði Drottins ekki, hönd hans var enn upp reidd.
12
Þjóðin sneri ekki aftur til hans sem laust hana, þeir leituðu ekki til Drottins allsherjar.
13
Þá hjó Drottinn höfuð og hala af Ísrael, pálmagrein og strá á sama degi.
14
Öldungar og virðingarmenn voru höfuðið en falsspámennirnir halinn.
15
Því að leiðtogar fólksins leiddu það afvega, þeir sem leiddir voru villtust.
16
Þess vegna þyrmdi Drottinn ekki æskumönnum sínum og sýndi ekkjum sínum og munaðarleysingjum enga miskunn því að þeir voru allir óguðlegir og illmenni og sérhver munnur þvaðraði. En samt sefaðist reiði Drottins ekki, hönd hans var enn upp reidd.
17
Því að illska þeirra brann eins og eldur sem gleypti þyrna og þistla. Hann kveikti í skógarþykkninu svo að það þyrlaðist upp í reykjarmekki.
18
Landið sviðnaði af heift Drottins, fólkið varð eins og eldsmatur. Enginn þyrmdi öðrum:
19
Þeir rifu í sig til hægri og voru jafnsvangir, átu til vinstri og urðu ekki saddir, þeir átu hold ættmenna sinna:
20
Manasse át Efraím og Efraím Manasse og saman réðust þeir á Júda. Samt sefaðist reiði Drottins ekki, hönd hans var enn upp reidd.
Icelandic Bible 2007
2007 Icelandic Bible Society
:
Vista Skýringar