Því að svo segir Drottinn, Guð Ísraels, um húsin í þessari borg og um hús Júdakonunga sem hafa verið rifin niður til að gera úr þeim varnargarð gegn árásarvirkjunum og sverðinu:
Kaldear ryðjast inn, gera árás til að fylla húsin með líkum þeirra sem ég felli í heift minni og reiði því að ég hef byrgt auglit mitt fyrir þessari borg vegna illsku íbúanna.
Ég hreinsa þá af allri þeirri sekt sem þeir hafa bakað sér með því að syndga gegn mér. Ég fyrirgef þeim allar syndir þeirra gegn mér, sem þeir hafa drýgt með því að rísa gegn mér.
Þá verður Jerúsalem mér til gleði, lofs og dýrðar meðal allra þjóða jarðarinnar þegar þær frétta um allt það góða sem ég geri henni. Þær munu titra og skjálfa vegna alls hins góða og þeirrar velgengni sem ég veiti borginni.
Svo segir Drottinn: Um þennan stað segið þér: „Hann er í rústum án fólks og fénaðar.“ En á þessum stað, í borgum í Júda og á götum Jerúsalem, mannauðum, án fólks og fénaðar, munu aftur kveða við
gleðihróp og fagnaðaróp, hróp brúðguma og brúðar, raddir þeirra sem færa þakkarfórn í húsi Drottins og segja: „Þakkið Drottni hersveitanna því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.“ Ég mun snúa högum landsins, það skal verða eins og áður, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Á þessum stað, sem er rústir einar, án fólks og fénaðar, og í öllum bæjunum umhverfis verður aftur haglendi fyrir hirða til að hvíla hjarðir sínar.
Í fjalllendinu, í borgunum á láglendinu, í borgunum í Suðurlandinu, í landi Benjamíns, í héruðunum umhverfis Jerúsalem og í borgunum í Júda mun féð að nýju renna fram hjá þeim sem telur það, segir Drottinn.
er unnt að rjúfa sáttmála minn við Davíð, þjón minn, svo að enginn niðja hans taki sæti sem konungur í hásæti hans, þá fyrst verður unnt að rjúfa sáttmála minn við Levítaprestana sem þjóna mér.
Ég mun fjölga niðjum Davíðs, þjóns míns, og Levítunum sem þjóna mér svo að þeir verði jafnmargir og himinsins her sem enginn getur talið og sjávarsandurinn sem ekki verður mældur.
Hefurðu ekki tekið eftir því sem þetta fólk segir: Drottinn hefur hafnað báðum ættbálkunum sem hann útvaldi. Þeir hæðast að lýð mínum og telja hann ekki lengur neina þjóð.
mun ég hvorki hafna niðjum Jakobs né Davíðs, þjóns míns. Ég mun velja menn af niðjum hans til að ríkja yfir ætt Abrahams, Ísaks og Jakobs því að ég mun snúa við högum þeirra og miskunna þeim.