Á níunda stjórnarári Sedekía Júdakonungs, í tíunda mánuðinum, hélt Nebúkadresar, konungur í Babýlon, gegn Jerúsalem með allan her sinn og settist um hana.
Þá komu allir herforingjar konungsins í Babýlon og settust niður í miðhliðinu, þeir Nergalsareser, höfðingi yfir Sím Magír, Nebúsarsekím hirðstjóri, Nergalsareser, yfirmaður embættismanna, og aðrir herforingjar konungsins í Babýlon.
Þegar Sedekía Júdakonungur og allir hermennirnir sáu þetta lögðu þeir á flótta. Um nóttina komust þeir út úr borginni og fóru um garð konungs og hliðið milli beggja múranna. Síðan héldu þeir í áttina til Jórdanardalsins.
En hersveitir Kaldea veittu þeim eftirför og náðu Sedekía á sléttunum við Jeríkó. Þeir tóku hann til fanga og fóru með hann norður til Ribla í Hamathéraði og leiddu hann fyrir Nebúkadresar konung í Babýlon. Hann kvað upp dóm yfir Sedekía.
Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, flutti þá sem eftir voru í borginni í útlegð til Babýlonar ásamt liðhlaupunum, sem höfðu leitað til hans, og öðrum sem eftir voru.
Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, Nebúsasban hirðstjóri og Nergalsareser herforingi og allir aðrir embættismenn konungsins í Babýlon sendu þá menn af stað
til að sækja Jeremía úr forgarði varðliðsins og fengu hann Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar, í hendur til að hann færi með hann heim. Eftir það bjó Jeremía meðal fólksins.
„Farðu og segðu við Ebed Melek frá Kús: Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Brátt læt ég orð mín gegn þessari borg rætast henni til ills en ekki til góðs. Þann dag munu þau rætast fyrir augum þínum.