Þá tók Asarja Hósajason til máls og talaði við Jeremía ásamt Jóhanan Kareasyni og öllum hrokagikkjunum. Þeir sögðu við Jeremía: „Það sem þú segir er lygi. Það var ekki Drottinn, Guð vor, sem sendi þig með þessi boð: Farið ekki til Egyptalands til að leita þar hælis.
Nei, það er Barúk Neríason sem æsir þig upp gegn oss til þess að selja oss Kaldeum á vald svo að þeir geti drepið oss eða flutt oss í útlegð til Babýlonar.“
En Jóhanan Kareason og allir herforingjarnir söfnuðu saman þeim sem eftir voru af Júdamönnum og höfðu snúið heim frá þeim þjóðum sem þeir höfðu verið hraktir til og komið til Júda til að setjast þar að.
Það voru karlar, konur og börn, einnig konungsdæturnar og allir hinir sem Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, hafði látið vera um kyrrt hjá Gedalja Ahíkamssyni, Safanssonar. Jeremía spámaður og Barúk Neríason voru á meðal þeirra.
Taktu þér í hönd nokkra stóra steina og grafðu þá niður í leirinn milli múrsteinanna í stéttinni framan við höll faraós í Takpanes í viðurvist nokkurra Júdamanna
og segðu við þá: Svo segir Drottinn hersveitanna, Guð Ísraels: Ég sendi eftir þjóni mínum, Nebúkadresari, konungi í Babýlon. Ég mun koma hásæti hans fyrir á þessum steinum sem ég hef grafið niður og hann mun þenja hásætishimin sinn út yfir þá.
Hann mun koma og sigra Egyptaland: Sá sem dauðanum er ætlaður fer til dauðans, sá sem útlegð er ætlaður fer í útlegð, sá sem sverði er ætlaður fer til sverðsins.
Hann mun kveikja í húsum guða Egyptalands, brenna guðina til ösku eða flytja þá í útlegð. Hann mun aflúsa Egyptaland, eins og smali sem tínir lýsnar af yfirhöfn sinni, og halda þaðan óáreittur.