Á níunda stjórnarári Sedekía bar svo við á tíunda degi tíunda mánaðar að Nebúkadresar, konungur í Babýlon, kom til Jerúsalem með allan her sinn og settist um hana. Þeir reistu virki til árása umhverfis hana
var borgarmúrinn rofinn. Um nóttina flýðu allir vopnfærir menn gegnum hliðið milli múranna tveggja gegnt garði konungsins. Tókst þeim og konungi að flýja þó að Kaldear umkringdu borgina og héldu í átt til Arabasléttunnar.
Hann lét stinga augun úr Sedekía og setja hann í hlekki. Því næst lét konungurinn í Babýlon flytja hann til Babýlonar og hafði hann í haldi til dauðadags.
Á tíunda degi fimmta mánaðar, á nítjánda stjórnarári Nebúkadresars Babýloníukonungs, kom til Jerúsalem Nebúsaradan, foringi lífvarðarins, sem þjónaði konunginum.
Nebúsaradan lífvarðarforingi flutti í útlegð þá sem eftir voru í borginni ásamt liðhlaupunum sem gengið höfðu konungi Babýlonar á hönd og þá sem eftir voru af handverksmönnunum.
Súlurnar tvær, hafið ásamt tólf nautum úr eir undir því og vagngrindurnar, sem Salómon konungur hafði látið gera fyrir hús Drottins, allt var það gert úr svo miklum eir að það varð ekki vegið.
Úr borginni tók hann hirðmann þann sem hafði eftirlit með hermönnunum, sjö af nánustu þjónum konungs sem enn voru í borginni, ritara hershöfðingjans sem annaðist herkvaðningu og sextíu alþýðumenn sem enn voru í borginni.
Á þrítugasta og sjöunda útlegðarári Jójakíns Júdakonungs, á tuttugasta og fimmta degi í tólfta mánuði, árið sem Evíl Merodak varð konungur í Babýlon, náðaði hann Jójakín Júdakonung og sleppti honum úr fangelsinu.