Leitið skjóls, Benjamíns niðjar, flýið frá Jerúsalem. Þeytið hornið í Tekóa, reisið upp merki yfir Betkerem, því að ógæfa ógnar úr norðri, mikil eyðing.
Svo segir Drottinn hersveitanna: Gerðu nákvæma eftirleit meðal leifa Ísraels eins og eftirleit á vínviði. Réttu hönd þína aftur og aftur að vínviðargreinunum eins og sá sem tínir vínber.
Við hvern á ég að tala, hver hlustar þegar ég vara við? Eyra þeirra er óumskorið, þeir vilja ekki hlusta. Þeir skopast að orði Drottins, þeim fellur það ekki í geð.
Ég er fullur af glóandi heift Drottins, ég er uppgefinn á að halda henni í skefjum. Helltu henni yfir börnin úti á götunni og yfir unglingahópinn. Bæði karlar og konur verða tekin til fanga, aldraðir jafnt og háaldraðir.
Þeir ættu að skammast sín því að þeir hafa hegðað sér viðurstyggilega. En þeir skammast sín ekki því að þeir þekkja enga blygðun. Þess vegna munu þeir falla með þeim sem falla. Þegar ég dreg þá til ábyrgðar verður þeim steypt, segir Drottinn.
Svo segir Drottinn: Nemið staðar við vegina og litist um, spyrjið um gömlu göturnar, hver sé hamingjuleiðin og farið hana svo að þér finnið sálum yðar hvíld. En þeir sögðu: „Vér viljum ekki fara hana.“
Heyr það, jörð. Ég færi þessari þjóð ógæfu. Það er ávöxtur þeirra eigin hugarfars því að þeir hafa ekki hlustað á orð mín, þeir hafa hafnað lögum mínum.
Hvað á ég að gera við reykelsi frá Saba eða góðan ilmreyr frá fjarlægu landi? Brennifórnir yðar eru mér ekki þóknanlegar og sláturfórnir yðar geðjast mér ekki.
Þeir eru vopnaðir bogum og spjótum, þeir eru grimmir og miskunnarlausir. Háreysti þeirra er sem hafgnýr, þeir koma ríðandi á hestum, hver og einn búinn til bardaga gegn þér, dóttirin Síon.
Dóttir mín, þjóð mín, gyrtu þig hærusekk, veltu þér í ösku, efndu til sorgarathafnar eins og eftir einkason, syrgðu beisklega því að eyðandinn kemur yfir oss í einu vetfangi.