|
| 1 |
|
| Ég er maðurinn sem hefur þjáðst undir reiðisvipu hans. |
|
| 2 |
|
| Mig hefur hann hrakið burt, út í myrkur og niðdimmu. |
|
| 3 |
|
| Gegn mér snýr hann hendi sinni án afláts allan daginn. |
|
| 4 |
|
| Hann hefur tálgað af mér hold og hörund og mulið bein mín. |
|
| 5 |
|
| Beiskju og mæðu hefur hann hlaðið upp í kringum mig, |
|
| 6 |
|
| hneppt mig í myrkur eins og þá sem dánir eru fyrir löngu. |
|
| 7 |
|
| Hann hefur múrað mig inni svo að ég kemst ekki út, lagt á mig þunga fjötra. |
|
| 8 |
|
| Þótt ég hrópi og kalli á hjálp hafnar hann bæn minni. |
|
| 9 |
|
| Hann hefur lokað vegum mínum með höggnum steinum, gert stigu mína torfæra. |
|
| 10 |
|
| Hann sat um mig eins og björn um bráð, eins og ljón í launsátri. |
|
| 11 |
|
| Hann leiddi mig afvega og tætti mig sundur, hann gerði út af við mig. |
|
| 12 |
|
| Hann spennti boga sinn og stillti mér upp sem skotmarki fyrir örina. |
|
| 13 |
|
| Hann nísti nýru mín með sonum örvamælis síns. |
|
| 14 |
|
| Ég varð allri þjóð minni að athlægi, hún syngur um mig háðkvæði liðlangan daginn. |
|
| 15 |
|
| Hann mettaði mig beiskum jurtum, gaf mér malurt að drekka, |
|
| 16 |
|
| lét mig bryðja möl og þrýsti mér í duftið. |
|
| 17 |
|
| Þú hefur rænt mig friði, ég veit ekki lengur hvað hamingja er |
|
| 18 |
|
| og segi: „Allur þróttur er mér horfinn og brostin von mín til Drottins.“ |
|
| 19 |
|
| Minnstu neyðar minnar og hrakninga, malurtarinnar og eitursins. |
|
| 20 |
|
| Sál mín hugsar sífellt um þetta og er döpur í brjósti mér. |
|
| 21 |
|
| En þetta vil ég hugfesta og þess vegna vona ég: |
|
| 22 |
|
| Náð Drottins er ekki þrotin, miskunn hans ekki á enda, |
|
| 23 |
|
| hún er ný á hverjum morgni, mikil er trúfesti þín. |
|
| 24 |
|
| Drottinn er hlutdeild mín, segir sál mín, þess vegna vona ég á hann. |
|
| 25 |
|
| Góður er Drottinn þeim er á hann vona og þeim manni er til hans leitar. |
|
| 26 |
|
| Gott er að bíða hljóður eftir hjálp Drottins. |
|
| 27 |
|
| Gott er fyrir manninn að bera ok í æsku. |
|
| 28 |
|
| Hann sitji einn og hljóður þegar Drottinn hefur lagt það á hann. |
|
| 29 |
|
| Hann liggi með munninn við jörðu, vera má að enn sé von, |
|
| 30 |
|
| hann bjóði þeim vangann sem slær hann, láti metta sig smán. |
|
| 31 |
|
| Því að ekki útskúfar Drottinn um alla eilífð. |
|
| 32 |
|
| Þótt hann valdi harmi, miskunnar hann af mikilli náð sinni. |
|
| 33 |
|
| Því að viljandi hrjáir hann ekki né hrellir mannanna börn. |
|
| 34 |
|
| Að troða undir fótum alla bandingja landsins, |
|
| 35 |
|
| að halla rétti manns fyrir augliti Hins hæsta, |
|
| 36 |
|
| að beita mann ranglæti í máli hans, skyldi Drottinn ekki sjá það? |
|
| 37 |
|
| Hver er sá sem bauð og það varð án þess að Drottinn hafi ákveðið það? |
|
| 38 |
|
| Gengur ekki fram af munni Hins hæsta bæði gæfa og ógæfa? |
|
| 39 |
|
| Hví skyldi nokkur lifandi maður kvarta sem refsað er fyrir syndir sínar? |
|
| 40 |
|
| Rannsökum breytni vora og prófum og snúum aftur til Drottins. |
|
| 41 |
|
| Fórnum hjarta og höndum til Guðs í himninum. |
|
| 42 |
|
| Vér höfum syndgað og verið óhlýðnir, þú hefur ekki fyrirgefið, |
|
| 43 |
|
| þú sveipaðir þig reiði, ofsóttir oss og deyddir vægðarlaust. |
|
| 44 |
|
| Þú sveipaðir þig skýi svo að engin bæn kemst í gegn. |
|
| 45 |
|
| Þú gerðir oss að skarni og sorpi á meðal þjóðanna. |
|
| 46 |
|
| Allir óvinir vorir glenntu upp ginið. |
|
| 47 |
|
| Geigur og gildra urðu hlutskipti vort, eyðing og tortíming. |
|
| 48 |
|
| Táralækir streyma af augum mér því að þjóð minni er tortímt. |
|
| 49 |
|
| Hvíldarlaust fljóta augu mín í tárum án þess að hlé verði á, |
|
| 50 |
|
| uns Drottinn lítur niður af himnum og horfir á. |
|
| 51 |
|
| Það sem auga mitt lítur kvelur mig vegna allra dætra borgar minnar. |
|
| 52 |
|
| Þeir sem voru óvinir mínir án tilefnis hafa elt mig eins og fugl. |
|
| 53 |
|
| Þeir reyndu að granda mér í gryfju og köstuðu steinum á mig. |
|
| 54 |
|
| Vatn flóði yfir höfuð mitt, ég hugsaði: „Það er úti um mig.“ |
|
| 55 |
|
| Ég ákallaði nafn þitt, Drottinn, úr djúpi gryfjunnar. |
|
| 56 |
|
| Þú heyrðir hróp mitt: „Byrg ekki eyra þitt fyrir ákalli mínu um hjálp.“ |
|
| 57 |
|
| Þú nálgaðist mig þegar ég hrópaði til þín, sagðir: „Óttast ekki!“ |
|
| 58 |
|
| Þú varðir, Drottinn, málstað minn, leystir líf mitt. |
|
| 59 |
|
| Þú hefur, Drottinn, séð óréttinn sem ég er beittur, rétt þú hlut minn. |
|
| 60 |
|
| Þú hefur séð hefndarþorsta þeirra, allt ráðabrugg þeirra gegn mér, |
|
| 61 |
|
| þú hefur heyrt háðsyrði þeirra, Drottinn, allt ráðabrugg þeirra gegn mér, |
|
| 62 |
|
| sífellt hljóðskraf andstæðinga minna og ráðagerðir þeirra gegn mér. |
|
| 63 |
|
| Sjá þú, hvort sem þeir sitja eða standa kveða þeir háðkvæði um mig. |
|
| 64 |
|
| Endurgjald þeim, Drottinn, eins og þeir hafa til unnið. |
|
| 65 |
|
| Legg hulu yfir hjarta þeirra, bölvan þín komi yfir þá. |
|
| 66 |
|
| Ofsæktu þá í reiði og afmá þá undan himni Drottins. |
|
|
|
|