Hann heldur ekki fórnarmáltíð á fjöllum og hefur ekki upp augu sín til skurðgoða Ísraelsmanna, hann svívirðir ekki eiginkonu náunga síns og leggst ekki með konu sem hefur á klæðum,
veitir lán gegn vöxtum og stundar okur, á hann að halda lífi? Nei, hann á ekki að halda lífi. Þar sem hann hefur framið alla þessa svívirðu skal hann deyja. Blóð hans skal koma yfir höfuð hans.
Hann heldur hendi sinni frá illum verkum, tekur hvorki vexti né stundar okur, framfylgir reglum mínum og fer að lögum mínum, þessi maður á ekki að deyja vegna sektar föður síns, hann á að halda lífi.
Samt spyrjið þið: „Hvers vegna tekur sonurinn ekki á sig sekt föður síns?“ Þar sem sonurinn hefur iðkað rétt og réttlæti og hefur gætt þess að halda öll ákvæði laga minna og framfylgja þeim skal hann vissulega lífi halda.
Sá maður sem syndgar skal deyja. Hvorki skal sonur taka á sig sekt föður síns né faðir taka á sig sekt sonar síns. Réttlæti réttláts manns skal tilreiknað honum sjálfum og ranglæti guðlauss manns skal koma niður á honum sjálfum.
En snúi guðlaus maður frá öllum sínum syndum, haldi hann öll mín lög og geri það sem er rétt og réttlátt, skal hann sannarlega lifa, hann skal ekki deyja.
En snúi réttlátur maður frá réttlæti sínu og fremji ranglæti og vinni öll þau sömu viðurstyggilegu verk og hinn guðlausi hefur unnið, á hann þá að halda lífi? Réttlætisverkanna sem hann vann verður ekki minnst. Vegna sviksemi sinnar og syndanna sem hann drýgði skal hann deyja.
Nú segið þið: „Drottinn breytir ekki rétt.“ En hlustið nú, Ísraelsmenn: Er það breytni mín sem ekki er rétt? Eruð það ekki öllu fremur þið sem breytið ekki rétt?
En Ísraelsmenn segja: „Drottinn breytir ekki rétt.“ Er það breytni mín sem ekki er rétt, Ísraelsmenn, eruð það ekki öllu fremur þið sem breytið ekki rétt?
Því mun ég dæma ykkur, Ísraelsmenn, sérhvern eftir sinni breytni, segir Drottinn Guð. Snúið við, hverfið frá öllum afbrotum ykkar svo að þau verði ykkur ekki að falli.