Hún lét ekki af ólifnaðinum, sem hún hóf í Egyptalandi, þar sem Egyptar höfðu lagst með henni í æsku hennar, gælt við meyjarbarm hennar og ausið yfir hana ólifnaði sínum.
Þeir beruðu blygðun hennar, tóku syni hennar og dætur frá henni og réðu henni bana með sverði. Hún varð því öðrum konum víti til varnaðar. Þannig var refsidóminum yfir henni fullnægt.
Þá komu Babýloníumenn til hennar, til ástarhvílu hennar og saurguðu hana með ólifnaði sínum. Þegar hún hafði saurgast af þeim gerðist hún þeim fráhverf.
Babýloníumönnum, öllum Kaldeum, mönnum frá Pekód, Sjóa og Kóa, að auki öllum Assýringum, hinum glæsilegu ungmennum sem allir eru landstjórar og fyrirmenn, stríðsvagnaforingjar og háttsettir menn, allir ríðandi hestum.
Þeir munu halda gegn þér hópum saman í vögnum með hvínandi hjólum ásamt liðsafnaði framandi þjóða. Þeir munu umkringja þig, búnir stórum og smáum skjöldum og hjálmum. Ég mun leggja málið fyrir þá og þeir munu dæma þig eftir lögum sínum.
Ég mun beina afbrýði minni gegn þér svo að þeir fari grimmdarlega með þig. Þeir munu skera af þér nef og eyru og það sem eftir verður af þér skal falla fyrir sverði. Þeir munu taka frá þér syni þína og dætur og það sem þá verður eftir af þér gleypir eldur.
Með þessu bind ég enda á ólifnað þinn og hórdóm sem þú hófst í Egyptalandi. Þú munt ekki lengur horfa löngunaraugum til friðla þinna og ekki hugsa framar til Egyptalands.
Þeir munu sýna þér hatur og svipta þig öllum eigum þínum og skilja þig eftir nakta og klæðlausa. Þú verður hórsek, blygðun þín beruð. Ólifnaður þinn og hórdómur
Þær hafa drýgt hór og hendur þeirra eru flekkaðar blóði. Þær hafa tekið fram hjá með skurðgoðum sínum og þar á ofan látið synina, sem þær ólu mér, ganga gegnum eld, skurðgoðunum til matar.
Þær sendu jafnvel eftir mönnum sem komu frá fjarlægum löndum. Þegar boðberi hafði sótt þá komu þeir. Þeirra vegna fórstu í bað, málaðir þig um augun og skreyttir þig skartgripum.
Áhyggjulaus og hávaðasamur hópur manna var umhverfis og þeirra á meðal svölluðu menn sem sóttir höfðu verið út í eyðimörkina. Þeir drógu armbönd á handleggi þeirra systra og settu dýrlegt djásn á höfuð þeirra.
Afleiðingar ólifnaðar ykkar verða lagðar á ykkur og þið verðið að bera afleiðingar synda ykkar með skurðgoðum ykkar. Þá munuð þið skilja að ég er Drottinn Guð.