Sjálfur munt þú falla á fjöllum Ísraels ásamt öllum hersveitum þínum og þjóðunum sem fylgja þér. Ég mun fá þig ránfuglum og öðrum vængjuðum skepnum ásamt dýrum merkurinnar að bráð.
Og ég mun kunngjöra mitt heilaga nafn meðal lýðs míns, Ísraels, og ég mun aldrei framar vanhelga mitt heilaga nafn. Þannig munu þjóðirnar skilja að ég er Drottinn, Hinn heilagi í Ísrael.
Íbúar borganna í Ísrael munu fara út og kveikja bál. Þeir munu kveikja í herklæðum sínum, litlum skjöldum og stórum, bogum og örvum, kastspjótum og lensum. Þeir munu halda bálinu logandi í sjö ár með þessu.
Þeir munu hvorki safna viði á víðavangi né fella tré í skógunum, heldur munu þeir kynda bálið með herbúnaðinum. Þeir munu ræna þá menn sem rændu þá og taka herfang af þeim sem af þeim tóku herfang, segir Drottinn Guð.
Á þeim degi fæ ég Góg legstað í Ísrael, í Óberím austan hafsins. Gröfin mun loka veginum fyrir þeim sem þar fara um því að Góg verður grafinn þar og allar hersveitir hans og staðurinn mun nefndur Hamón Góg.
Velja skal sérstaka menn sem sífellt skulu ferðast um landið og grafa þá sem eftir liggja á víðavangi til að hreinsa landið. Eftir sjö mánuði skulu þeir kanna landið rækilega
En þú, mannssonur, svo segir Drottinn Guð: Ávarpa fuglana, öll vængjuð dýr og öll villidýr merkurinnar: Safnist saman og komið. Komið saman úr öllum áttum. Ég færi mikla sláturfórn fyrir ykkur á fjöllum Ísraels. Þið skuluð fá kjöt að eta og blóð að drekka.
Þjóðirnar munu skilja að Ísraelsmenn fóru í útlegð vegna sektar sinnar. Ég huldi auglit mitt fyrir þeim, af því að þeir sviku mig, og seldi þá í hendur fjandmanna þeirra svo að þeir féllu allir fyrir sverði.
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Nú sný ég högum Jakobs og sýni öllum Ísraelsmönnum miskunn og ég er fullur af ákafri afbrýði vegna míns heilaga nafns.
Þegar ég hef leitt þá frá framandi þjóðum og safnað þeim saman úr löndum fjandmanna þeirra mun ég birta heilagleika minn á þeim fyrir augum fjölmargra þjóða.
Þá munu þeir skilja að ég er Drottinn, Guð þeirra því að eftir að ég hafði látið flytja þá til framandi þjóða í útlegð safnaði ég þeim saman aftur í þeirra eigin landi og skildi engan eftir.