Í ársbyrjun, tíunda dag mánaðarins á tuttugasta og fimmta árinu frá því að við vorum fluttir í útlegð, á fjórtánda ári eftir fall borgarinnar, einmitt þann dag kom hönd Drottins yfir mig og flutti mig
Maðurinn sagði við mig: „Mannssonur, horfðu með augum þínum og hlustaðu með eyrum þínum. Taktu vel eftir öllu sem ég sýni þér því að þú varst fluttur hingað til þess að ég sýndi þér það. Skýrðu Ísraelsmönnum frá öllu sem þú sérð.“
Múrveggur var utan um musterið og náði alveg í kringum það. Maðurinn hafði mælistiku í hendi sér sem var sex álnir á lengd. Hver alin var venjuleg alin að viðbættri einni þverhönd. Hann mældi þykkt múrsins og reyndist hún vera ein mælistika og hæðin ein stika.
Hann mældi einnig hliðarstúkur hliðsins sem reyndust ein mælistika á lengd og ein á breidd. Á milli stúknanna voru fimm álnir. Sá þröskuldur hliðsins sem sneri að forsal hliðsins að innanverðu var ein mælistika.
Á stúkunum og stoðum þeirra voru gluggar sem lokað var með grindum. Þeir opnuðust allt umhverfis inn í hliðið. Eins voru gluggar allt umhverfis inn í forsalinn og stoðir hans voru skreyttar pálmum.
Í því voru þrjár hliðarstúkur hvorum megin, forsalur og stoðir sem voru jafnstórar og í hinu hliðinu. Hliðið var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm á breidd.
Á hliðinu voru gluggar og einnig allt í kring á forsal þess. Þeir voru eins og hinir fyrri. Hliðið var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm á breidd.
Hliðarstúkurnar í því, stoðirnar og forsalurinn voru af sömu stærð og í hinum hliðunum. Á hliðinu og forsal þess voru gluggar allt í kring. Það var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm á breidd.
Hliðarstúkur hliðsins, stoðir og forsalur voru af sömu stærð og í hinum hliðunum. Á hliðinu og forsal þess voru gluggar allt í kring. Það var fimmtíu álnir á lengd og tuttugu og fimm á breidd.
Brennifórnarborðin fjögur voru gerð úr tilhöggnum steinum. Þau voru ein og hálf alin á lengd, ein og hálf á breidd og ein alin á hæð. Inni í húsinu var komið fyrir hillum allt í kring, sem voru ein þverhönd á breidd. Á þær voru áhöldin lögð, sem notuð voru til að slátra dýrum í brenni- og sláturfórn, en fórnarkjötið var lagt á borðin.
Utan við innra hliðið í innri forgarðinum voru tvær álmur. Önnur var við hliðarvegg norðurhliðsins, sem snýr í suður, og hin við hliðarvegg suðurhliðsins sem veit í norður.
En álman sem snýr í norður er ætluð prestunum sem gegna þjónustu við altarið. Þeir eru niðjar Sadóks og eru þeir einu af niðjum Leví sem mega nálgast Drottin til að þjóna honum.“
Því næst leiddi hann mig inn í forsal musterisins og mældi stoðirnar í forsalnum. Þær voru fimm álnir hvorum megin. Inngangurinn í hliðið var fjórtán álnir á breidd og hliðarveggirnir við innganginn voru hvor um sig þrjár álnir.