Sýnin sem ég sá var eins og sú sem ég sá þegar hann kom til að leggja borgina í eyði. Sýnin var eins og sýnin sem ég sá við Kebarfljót. Ég lét fallast á ásjónu mína.
og sagði við mig: Mannssonur, þetta er staður hásætis míns og skör fóta minna. Hér mun ég ævinlega búa á meðal Ísraelsmanna. En Ísraelsmenn skulu aldrei framar saurga mitt heilaga nafn, hvorki þeir né konungar þeirra. Það skulu þeir hvorki gera með hórdómi sínum né líkum konunga sinna.
En þeir settu þröskuld sinn við minn þröskuld og dyrastafi sína við mína dyrastafi svo að aðeins skildi veggur milli mín og þeirra og þeir saurguðu mitt heilaga nafn með viðbjóðslegri breytni sinni svo að ég eyddi þeim í heift minni.
og munu þá blygðast sín fyrir allt sem þeir hafa gert. Þú skalt lýsa útliti hússins, innréttingu þess, útgöngum og inngöngum og öllum fyrirmælum og reglum um það. Skráðu allt fyrir augum þeirra og þeir skulu halda öll fyrirmæli og reglur um það og breyta eftir þeim.
Þetta er stærð altarisins mæld í álnum en hver alin samsvarar venjulegri alin að viðbættri einni þverhönd: Rennan umhverfis það var ein alin á dýpt og ein á breidd og brúnin allt um kring á barmi hennar er ein spönn. Þetta var fótstallur altarisins:
Frá rennunni í jörðinni voru tvær álnir að neðsta stalli þess sem var ein alin á breidd. Frá litla stallinum voru fjórar álnir að þeim stóra sem var ein alin á breidd.
Stóri miðstallurinn var fjórtán álnir á lengd og fjórtán á breidd með fjórum jöfnum hliðum. Brúnin umhverfis var hálf alin á breidd og rennan í kringum ein alin. Þrepin upp að altarinu sneru í austur.
Maðurinn sagði við mig: Mannssonur, svo segir Drottinn Guð: Þetta eru lagaákvæðin um altarið: Daginn sem það hefur verið reist til að færa á því brennifórn og dreypa á það blóði
skaltu fá Levítaprestunum naut úr stórgripahjörðinni í syndafórn, en Levítaprestarnir eru þeir af niðjum Sadóks sem mega nálgast mig til að þjóna mér, segir Drottinn Guð.
Þú skalt taka nokkuð af blóði þess og bera það á fjögur horn altarisins, fjögur horn stallsins og á brúnina allt umhverfis. Þannig skaltu hreinsa altarið af synd og friðþægja fyrir það.
Dag hvern, í sjö daga, skaltu búa geithafur til syndafórnar. Einnig skal naut úr nautahjörðinni og hrútur úr sauðahjörðinni, bæði lýtalaus dýr, búin til fórnar.
Þannig skulu þessir dagar líða. En á áttunda degi og framvegis skulu prestarnir færa brennifórnir ykkar og heillafórnir á altarinu. Og ég mun taka ykkur náðarsamlega, segir Drottinn Guð.