Þá sagði Drottinn við mig: Þetta hlið skal vera lokað. Ekki má opna það og enginn maður má ganga um það. Þar sem Drottinn Guð Ísraels kom inn um það skal það vera lokað.
Þar sem landshöfðinginn er landshöfðingi má hann sitja inni í hliðinu og neyta matar frammi fyrir augliti Drottins. Hann á að ganga inn í hliðið úr forsal hliðbyggingarinnar og ganga út sömu leið.
Þá leiddi maðurinn mig um norðurhliðið að framhlið hússins. Þegar ég horfði þangað sá ég að dýrð Drottins fyllti hús Drottins og ég féll fram á ásjónu mína.
Þá sagði Drottinn við mig: Mannssonur, taktu nú vel eftir og horfðu með augum þínum og hlustaðu með eyrum þínum á allt sem ég segi þér um öll ákvæðin um hús Drottins og öll lögin um það. Hafðu einnig nánar gætur á inngöngudyrum musterisins og öllum útgöngudyrum helgidómsins.
Þið hafið leyft útlendingum, sem hvorki eru umskornir á hjarta né holdi, að koma inn í helgidóm minn og saurga hann, hús mitt, þegar þið hafið borið fram mat minn, mör og blóð. Þið hafið rofið sáttmálann við mig með allri ykkar svívirðu.
Þess vegna segir Drottinn svo: Enginn útlendingur, sem hvorki er umskorinn á hjarta né holdi, má koma inn í helgidóm minn, enginn af þeim útlendingum sem búa innan um Ísraelsmenn.
Í helgidómi mínum eiga þeir að annast vörslu hliðanna í húsinu og sjá um þjónustu í því. Þeir eiga að slátra dýrum til brennifórnar og sláturfórnar fyrir almenna borgara og þjóna þeim.
Þeir þjónuðu þeim frammi fyrir skurðgoðum þeirra og urðu Íraelsmönnum ásteytingarsteinn svo að þeir féllu í synd. Því hef ég hafið hönd mína gegn þeim, segir Drottinn Guð, og þeir skulu bera afleiðingar sektar sinnar.
Þeir mega ekki nálgast mig til að þjóna mér sem prestar svo að þeir nálgist mínar heilögu fórnargjafir, mínar háheilögu fórnargjafir. Þeir skulu taka á sig eigin smán og afleiðingar þeirrar svívirðu sem þeir hafa framið.
Levítaprestarnir, niðjar Sadóks, önnuðust þjónustuna í helgidómi mínum þegar Ísraelsmenn villtust frá mér. Þeir skulu nálgast mig til að þjóna mér, standa frammi fyrir augliti mínu og bera fram fyrir mig mör og blóð, segir Drottinn Guð.
Þegar þeir ganga inn um hlið innri forgarðsins skulu þeir klæðast línklæðum. Þeir mega ekki vera í neinu úr ull þegar þeir gegna þjónustu í hliðum innri forgarðsins eða inni í húsinu.
Þegar þeir ganga út í ytri forgarðinn, til fólksins, skulu þeir fara úr þeim klæðum sem þeir báru við þjónustuna og skilja þau eftir í hinum heilögu herbergjum og fara í önnur föt svo að þeir helgi ekki fólkið með klæðum sínum.
Þeir skulu koma fram sem dómarar í deilumálum fyrir rétti og dæma samkvæmt réttarreglum mínum. Á öllum hátíðum mínum skulu þeir halda lög mín og ákvæði og halda hvíldardaga mína heilaga.
Þeir mega ekki saurga sig á að nálgast látinn mann. Þeir mega aðeins saurgast á líki föður, móður, sonar, dóttur, bróður eða systur sem enn hefur ekki verið gefin manni.
Prestarnir skulu fá það besta af öllum frumgróða, hvað sem það er, og af öllum afgjöldum, hver sem þau eru, af öllum afgjöldum ykkar yfirleitt. Þið skuluð gefa prestinum það besta af deigi ykkar svo að blessun hvíli yfir húsi ykkar.