Þá komu sex menn frá efra hliðinu sem snýr í norður. Hver þeirra hafði sleggju í hendi. Meðal þeirra var maður í línklæðum og hafði hann skriffæri við mjöðm sér. Þeir komu inn og tóku sér stöðu við hliðina á eiraltarinu.
Dýrð Guðs Ísraels hafði hafið sig frá kerúbunum sem hún hafði verið yfir og fært sig að þröskuldi hússins. Þá hrópaði Drottinn til mannsins, sem bar línklæðin og hafði skriffæri við mjöðm sér,
og Drottinn sagði við hann: „Gakktu gegnum miðja borgina, þvert í gegnum Jerúsalem, og skrifaðu tákn á enni þeirra manna sem andvarpa og kveina yfir öllum þeim svívirðingum sem framdar eru í borginni.“
Þið skuluð deyða og tortíma öldruðum, piltum og stúlkum, börnum og konum en þið megið engan snerta sem táknið er á. Þið skuluð hefjast handa hjá helgidómi mínum.“ Þeir byrjuðu á öldungunum sem voru fyrir framan húsið.
Á meðan þeir voru að höggva varð ég eftir, féll fram á ásjónu mína og hrópaði: „Drottinn Guð. Ætlar þú að eyða öllum þeim Ísraelsmönnum sem eftir eru þegar þú úthellir logandi heift þinni yfir Jerúsalem?“
Hann sagði við mig: „Synd Ísraels og Júda er afar mikil. Landið er orðið fullt af blóðsekt og borgin full af ranglæti því að íbúarnir segja: Drottinn hefur yfirgefið landið svo að Drottinn sér ekkert.