Er vínið tók að svífa á Belsassar skipaði hann að sótt skyldu gull- og silfurkerin sem Nebúkadnesar, faðir hans, hafði haft á burt með sér úr musterinu í Jerúsalem svo að konungurinn, hefðarmenn hans, konur hans og hjákonur gætu drukkið úr þeim.
Þá voru gullkerin sótt, sem tekin höfðu verið úr musterinu, húsi Guðs í Jerúsalem, og konungurinn, hefðarmenn hans, konur hans og hjákonur drukku úr þeim.
Konungur kallaði háum rómi að sækja skyldi særingamennina, Kaldea og spásagnamennina. Og konungur tók til máls og sagði við vitringana í Babýlon: „Hver sem les þetta letur og segir mér hvað það merkir skal hljóta purpuraklæði, hálsfesti úr gulli og skipa þriðja æðsta tignarsess í ríkinu.“
Þegar drottning heyrði orðaskipti konungs og hefðarmanna hans gekk hún í veislusalinn og tók til máls: „Konungur, megir þú lifa að eilífu. Láttu ekki hugsanir þínar hræða þig svo að þú fölnir.
Í ríki þínu er maður nokkur sem andi hinna heilögu guða býr í og á dögum föður þíns reyndu menn hann að visku, þekkingu og speki, líkri speki guðanna. Nebúkadnesar konungur, faðir þinn, skipaði hann yfirmann spásagnamannanna, særingamannanna, Kaldea og galdramannanna.
Þessi maður, Daníel, sem konungurinn kallaði Beltsasar, bjó yfir frábæru innsæi, þekkingu og kunnáttu við að ráða drauma og gátur og greiða úr vandamálum. Láttu því kalla á Daníel svo að hann geti sagt hvað þetta merkir.“
En um þig hef ég frétt að þú kunnir bæði að ráða í tákn og greiða úr vandamálum. Getir þú lesið þetta letur og sagt mér hvað það merkir skaltu hljóta að launum purpuraklæði, hálsfesti úr gulli og teljast hinn þriðji að tign í ríkinu öllu.“
Daníel sagði þá við konung: „Haltu sjálfur þeirri umbun og gefðu einhverjum öðrum gjafir þínar en letrið skal ég lesa, konungur, og segja þér merkingu þess.
En vegna valdsins, sem hann hafði veitt honum, hræddust hann menn af öllum þjóðum og tungum og stóð þeim beygur af honum. Hann tók þá af lífi eftir geðþótta og lét þá lífi halda eftir geðþótta. Hann hóf þá til metorða eftir geðþótta og niðurlægði þá eftir geðþótta.
Hann var hrakinn burt úr samfélagi manna og hjarta hans varð sem dýrshjarta. Hann deildi kjörum með villiösnum, honum var gefið gras að eta eins og nautpeningi og líkami hans vöknaði af dögg himinsins uns honum varð ljóst að Guð hinn æðsti ræður yfir konungdómi manna og veitir hann þeim sem hann kýs.
heldur hefurðu storkað Drottni himnanna, látið færa þér kerin úr húsi hans og þú og hefðarmenn þínir, konur þínar og hjákonur hafa drukkið vín úr þeim. Þú hefur vegsamað guði úr silfri, gulli, eir, járni, tré og steini sem ekkert sjá, ekkert heyra og ekkert vita. En þann Guð sem ræður lífsanda þínum og öllum vegum þínum, hann hefur þú ekki vegsamað.
Þá skipaði Belsassar að Daníel skyldi klæddur í purpura og gullfesti sett um háls honum. Jafnframt var því lýst yfir að hann skyldi teljast hinn þriðji að tign í ríkinu öllu.