Á fyrsta stjórnarári Belsassars konungs í Babýlon dreymdi Daníel draum í rekkju sinni og sá sýnir. Hann skráði síðan drauminn og í upphafi frásagnarinnar
Fyrsta dýrið var eins og ljón en hafði arnarvængi. Meðan ég horfði á það tættust vængir þess af því, því var lyft upp og það reist á fætur eins og maður væri og því var fengið mannshjarta.
Og annað dýr sá ég og annars háttar. Það var eins og bjarndýr, reis upp á aðra hlið og bar þrjú rifbein í kjafti sér milli tannanna. Og því var skipað: „Stattu upp og éttu firn af kjöti.“
Og enn sá ég í nætursýn minni fjórða dýrið, hræðilegt, ógnvekjandi og afar máttugt. Það hafði járntennur, hámaði í sig og bruddi og traðkaði undir fótum það sem það leifði. Það var ólíkt öllum fyrri dýrunum og var með tíu horn.
Þegar ég virti fyrir mér hornin sá ég annað horn og smærra spretta fram meðal þeirra og voru þrjú af fyrri hornunum rifin upp til að rýma fyrir því. Á þessu horni voru augu, lík mannsaugum, og munnur sem mælti gífuryrði.
Meðan ég horfði á var hásætum komið fyrir og Hinn aldni tók sér sæti. Klæði hans voru mjallahvít og höfuðhár hans sem hrein ull. Hásæti hans var eldslogi og hjólin undir því logandi bál.
Honum var falið valdið, tignin og konungdæmið og allir menn, þjóðir og tungur skyldu lúta honum. Veldi hans er eilíft og líður aldrei undir lok, á konungdæmi hans verður enginn endir.
Síðan óskaði ég gleggri vitneskju um fjórða dýrið sem ólíkt var hinum dýrunum, ógnþrungið með járntennur og eirklær og át og bruddi og traðkaði undir fótum það sem það leifði,
og eins um hornin tíu á höfði þess; um nýja hornið sem spratt fram og hin þrjú sem féllu af til að rýma fyrir því, hornið sem hafði augu og munn, mælti gífuryrði og var meira ásýndum en hin.
Þessu svaraði hann: „Fjórða dýrið merkir að fjórða konungsríkið mun koma fram á jörðinni og mun það verða ólíkt öllum fyrri konungsríkjunum. Það mun svelgja í sig öll lönd, traðka á þeim og troða þau sundur.
Hornin tíu merkja að í þessu ríki munu koma fram tíu konungar en annar konungur mun hefjast til valda eftir þá. Hann verður ólíkur hinum fyrri og mun steypa þremur konungum úr sessi.
Hann mun snúa orðum sínum gegn Hinum æðsta, kúga hina heilögu Hins æðsta, ráðgera að breyta helgitíðum og lögum og þeir verða seldir í hendur honum um eina tíð, tvær tíðir og hálfa tíð.
En konungsveldi, vald og tign allra konungsríkja undir himninum verður fengið hinum heilögu Hins æðsta. Konungdæmi þeirra verður eilíft konungdæmi og því munu öll ríki þjóna og hlýða.“