Biblían 2007
|
| 1 |
| Orð Drottins sem barst Hósea Beerísyni þegar Ússía, Jótam, Akas og Hiskía voru konungar í Júda og Jeróbóam Jóasson var konungur í Ísrael. |
| 2 |
| Drottinn tók nú að tala til Hósea. Drottinn sagði við Hósea: „Farðu og gakktu að eiga hórkonu og eignastu hórbörn því að landið drýgir hór og hverfur frá Drottni.“ |
| 3 |
| Þá fór hann og gekk að eiga Gómer Diblaímsdóttur, hún varð þunguð og ól honum son. |
| 4 |
| Drottinn sagði við hann: „Láttu hann heita Jesreel því að eftir skamma hríð dreg ég ætt Jehú til ábyrgðar fyrir blóðbaðið í Jesreel og bind enda á konungdæmi Ísraelsmanna. |
| 5 |
| Á þeim degi brýt ég boga Ísraels á Jesreelsléttu.“ |
| 6 |
| Hún varð aftur þunguð og ól dóttur. Drottinn sagði við Hósea: „Gefðu henni nafnið Miskunnarvana því að ég mun hvorki miskunna Ísraelshúsi framar né fyrirgefa því. |
| 7 |
| En ég mun miskunna Júdahúsi vegna Drottins, Guðs þess, en ég mun ekki hjálpa því með boga, sverði eða bardaga, hestum eða riddurum, heldur vegna Drottins, Guðs þess.“ |
| 8 |
| Þegar Gómer hafði hætt að gefa Miskunnarvana brjóst varð hún aftur þunguð og ól son. |
| 9 |
| Drottinn sagði: „Láttu hann heita Ekki-lýður-minn því að þér eruð ekki lýður minn og ég verð ekki með yður.“ |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/hosea/001.mp3
14
1