Biblían 2007
|
| 1 |
| Samaría er sek því að hún reis gegn Guði sínum. Íbúar hennar munu falla fyrir sverði, brjóstmylkingum verður slegið við og þungaðar konur ristar á kvið. |
| 2 |
| Snú þú aftur, Ísrael, til Drottins, Guðs þíns, því að misgjörð þín varð þér að falli. |
| 3 |
| Takið orð með yður og hverfið aftur til Drottins. Segið við hann: „Þú fyrirgefur hverja sekt, taktu við orðum vorum, vér færum fram varir vorar í stað nauta. |
| 4 |
| Assýría bjargar oss ekki, vér ríðum ekki oftar á stríðsfákum og segjum ekki framar: „Guð vor“ við eigin handaverk því að munaðarleysinginn hlýtur miskunn hjá þér.“ |
| 5 |
| Ég ætla að lækna tryggðarof þeirra og elska þá af frjálsum og fúsum vilja. Reiði mín er snúin frá þeim. |
| 6 |
| Ég verð Ísrael sem dögg, hann mun blómgast eins og lilja, skjóta rótum eins og trén í Líbanon. |
| 7 |
| Greinar hans munu breiða úr sér og krónan verður eins og á ólífutré, og hann mun ilma eins og skógurinn í Líbanon. |
| 8 |
| Þeir sem búa í skugga Drottins munu rækta korn og blómgast sem vínviður. |
| 9 |
| Hvaða gagn hefur Efraím af skurðgoðum? Ég mun bænheyra hann og annast hann. Ég er sem gróskumikill einirunni, hjá mér muntu finna nægan ávöxt. |
| 10 |
| Hver er svo vitur að hann skilji þetta, svo glöggur að hann játi það? Vegir Drottins eru beinir, réttlátir fara þá en syndarar hrasa á þeim. |
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/hosea/014.mp3
14
14