Heyrið orð Drottins, þér Ísraelsmenn! Því að Drottinn hefir mál að kæra gegn íbúum landsins, því að í landinu er engin trúfesti, né kærleikur, né þekking á Guði.
Lýður minn verður afmáður, af því að hann hefir enga þekking. Af því að þér hafið hafnað þekkingunni, þá vil ég hafna yður, svo að þér séuð ekki prestar fyrir mig, og með því að þér hafið gleymt lögmáli Guðs yðar, þá vil ég og gleyma börnum yðar.
Lýður minn gengur til frétta við trédrumb sinn, og stafsproti hans veitir honum andsvör. Því að hórdómsandi hefir leitt þá afvega, svo að þeir drýgja hór, ótrúir Guði sínum.
Efst uppi á fjöllunum fórna þeir sláturfórnum, og á fórnarhæðunum færa þeir reykelsisfórnir, undir eikum, öspum og terebintum, því að skuggi þeirra er ununarfullur. Fyrir því drýgja dætur yðar hór og fyrir því hafa yðar ungu konur fram hjá.
Ég vil ekki hegna dætrum yðar fyrir það að þær drýgja hór, né yðar ungu konum fyrir það að þær hafa fram hjá, því að þeir ganga sjálfir afsíðis með portkonum og fórna sláturfórnum með hofskækjum, og fávitur lýðurinn steypir sér í glötun.
Þótt þú, Ísrael, drýgir hór, þá láti Júda sér það ekki á verða. Farið eigi til Gilgal og gangið ekki upp til Betaven og sverjið ekki: “Svo sannarlega sem Drottinn lifir.”