En þessi dýr, sem aðeins jórtra eða aðeins hafa klofna hófa, megið þið ekki eta: Þið megið ekki eta úlfalda; þið skuluð telja hann óhreinan því að hann jórtrar en hefur ekki klofna hófa;
Allt sem þau falla á dauð verður óhreint, hvort sem það er einhver hlutur úr viði, klæði, leðri eða striga eða hvaða nytsamur hlutur sem vera skal. Þeim hlut skal dýft í vatn og verður hann óhreinn til kvölds.
Allur matur, sem annars mætti neyta, verður óhreinn ef vatn úr slíku keri rennur á hann. Sérhver drykkur, sem annars mætti drekka, verður óhreinn í slíku keri.
Allt sem hræ einhvers þessara dýra fellur á verður óhreint. Ef það er ofn eða eldstæði skal það rifið niður því að það er orðið óhreint. Það skal vera ykkur óhreint.
Sá sem neytir einhvers af hræinu skal þvo klæði sín og hann verður óhreinn til kvölds. Sá sem tekur hræið upp skal þvo klæði sín og hann verður óhreinn til kvölds.
Þið megið ekki eta nokkurt dýr sem skríður á kviðnum eða gengur á fjórum fótum eða fjölmörgum fótum, yfirleitt einskis dýrs sem skríður á jörðinni því að þau eru viðurstyggð.
Vegna þess að ég er Drottinn, Guð ykkar, skuluð þið helga ykkur og vera heilagir því að ég er heilagur. Þið skuluð ekki saurga ykkur með því að snerta skriðdýr sem skríður á jörðinni.