Því næst skal hann taka lifandi fuglinn, sedrusviðinn, hárauða þráðinn og ísópinn og dýfa því öllu ásamt fuglinum, sem er lifandi, í blóð fuglsins sem var slátrað yfir lindarvatninu.
Síðan skal hann stökkva vatninu sjö sinnum á þann sem lætur hreinsa sig af holdsveiki. Presturinn skal úrskurða hann hreinan og láta fuglinn, sem lifir, fljúga burt.
Sá sem lætur hreinsa sig skal þvo klæði sín, raka af sér allt hár og baða sig í vatni og verður þá hreinn. Eftir það má hann koma inn í herbúðirnar en hann skal hafast við fyrir utan tjald sitt í sjö daga.
Á sjöunda degi skal hann raka af sér allt hár, höfuðhár, skegg og augnabrúnir. Þegar hann hefur rakað af sér allt hár skal hann þvo klæði sín og baða líkama sinn í vatni og verður þá hreinn.
Á áttunda degi skal hann taka tvö lýtalaus hrútlömb og eina lýtalausa veturgamla gimbur, enn fremur þrjá tíundu úr efu af fínu mjöli blönduðu olíu í kornfórn og einn lóg af olíu.
Presturinn, sem hreinsar, skal láta manninn, sem lætur hreinsa sig, taka sér stöðu ásamt fórnargjöfunum frammi fyrir augliti Drottins við dyr samfundatjaldsins.
Hann skal slátra lambinu á sama stað og hann slátrar syndafórnardýrunum og brennifórnardýrunum, á helgum stað, því að sektarfórnin verður eign prestsins eins og syndafórnin, hún er háheilög.
Presturinn skal taka nokkuð af blóði sektarfórnardýrsins og bera það á hægri eyrnasnepil, hægri þumalfingur og hægri stórutá þess sem lætur hreinsa sig.
Presturinn skal dýfa hægri vísifingri í olíuna, sem er í vinstri lófa hans, og stökkva með fingri sínum dálitlu af olíunni sjö sinnum frammi fyrir augliti Drottins.
Auk sektarfórnarblóðsins skal presturinn bera nokkuð af olíunni, sem eftir er í lófa hans, á hægri eyrnasnepil, hægri þumalfingur og hægri stórutá þess sem lætur hreinsa sig.
Það sem þá er eftir af olíunni í vinstri lófa prestsins skal hann setja á höfuð þess sem lætur hreinsa sig og presturinn skal friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni.
Því næst skal presturinn færa syndafórnina og friðþægja fyrir þann sem lætur hreinsa sig vegna óhreinleika hans. Þá skal presturinn slátra brennifórnardýrinu.
Presturinn skal því næst láta brennifórnina ásamt kornfórninni líða upp í reyk af altarinu. Þannig friðþægir presturinn fyrir manninn og verður hann hreinn.
Sé maðurinn fátækur og hafi ekki ráð á þessu skal hann taka eitt lamb í sektarfórn. Skal því veifað til þess að friðþægja fyrir hann. Enn fremur skal hann færa einn tíunda af fínu mjöli blönduðu olíu í kornfórn og einn lóg af olíu,
Presturinn skal slátra lambinu sem ætlað er í sektarfórn. Því næst skal hann taka nokkuð af blóði sektarfórnardýrsins og rjóða því á hægri eyrnasnepil, hægri þumalfingur og hægri stórutá þess sem lætur hreinsa sig.
Presturinn skal rjóða dálitlu af olíunni, sem eftir er í vinstri lófa hans, á sama stað og sektarfórnarblóðið, á hægri eyrnasnepil, hægri þumalfingur og hægri stórutá þess sem lætur hreinsa sig.
Það sem þá er eftir af olíunni í vinstri lófa prestsins skal hann setja á höfuð þess sem lætur hreinsa sig til þess að friðþægja fyrir hann frammi fyrir Drottni.
Þá skal presturinn gefa fyrirmæli um að rýma húsið áður en hann kemur til að skoða skelluna svo að ekki verði allt óhreint sem í húsinu er. Að því loknu skal presturinn ganga inn til að líta á húsið.
Hann skal skoða skelluna og staðfesti hann að djúpar skellur séu á veggjum hússins, gulgrænar eða rauðleitar, sem virðast liggja dýpra en múrveggurinn umhverfis,
skal presturinn koma aftur til að skoða það. Staðfesti hann að skellan hafi breiðst út um húsið er þetta illkynjuð holdsveiki á húsinu. Það er óhreint.
Komi prestur og skoði húsið og staðfesti að skellan hefur ekki breiðst út eftir að húsið var kalkað að nýju, skal presturinn úrskurða húsið hreint. Skellan hefur læknast.
Því næst skal hann taka sedrusviðinn, ísópinn og hárauða þráðinn ásamt fuglinum sem er lifandi og dýfa í blóð fuglsins sem slátrað var og í lindarvatn. Þá skal hann stökkva því sjö sinnum á húsið.