Hver sem snertir eitthvað sem hefur verið undir manninum verður óhreinn til kvölds og sá sem tekur það upp skal þvo klæði sín og baða sig í vatni. Hann er óhreinn til kvölds.
Þegar maður með útferð verður hreinn af útferðinni skal hann telja sjö daga frá því að hann varð hreinn. Þá skal hann þvo klæði sín og baða líkama sinn í vatni og verður hreinn.
Presturinn skal færa aðra þeirra í syndafórn en hina í brennifórn. Þannig friðþægir presturinn fyrir manninn vegna útferðar hans, frammi fyrir augliti Drottins.
Þegar kona hefur á klæðum marga daga á öðrum tíma en þeim sem hún hefur tíðir eða hún hefur blæðingar lengur en venjulegar tíðir er hún óhrein á meðan blæðingarnar vara eins og þegar hún hefur tíðir. Hún er óhrein.
Hvert það rúm sem hún leggst í meðan hún hefur blæðingar verður eins og rúm hennar meðan hún hefur tíðir. Hver sá hlutur sem hún sest á verður óhreinn eins og af óhreinleika tíða hennar.
Presturinn skal færa aðra þeirra í syndafórn en hina í brennifórn. Þannig friðþægir presturinn fyrir konuna frammi fyrir augliti Drottins vegna óhreinnar útferðar hennar.
Þið skuluð vara Ísraelsmenn við óhreinleika sínum svo að þeir deyi ekki vegna óhreinleika síns af því að þeir óhreinka bústað minn sem er á meðal þeirra.“
og um þá konu sem verður óhrein af tíðum sínum, lög um þann sem hefur útferð, hvort heldur það er karl eða kona, og um þann mann sem leggst með óhreinni konu.