Þá skal hann færa það sonum Arons, prestunum. Presturinn skal þá taka handfylli af mjölinu og olíunni ásamt öllu reykelsinu. Því næst skal presturinn láta minningarhluta fórnarinnar líða upp í reyk af altarinu. Þetta er eldfórn, Drottni þekkur ilmur.
Þegar þú færir kornfórn, brauð bakað í ofni, skal hún vera úr fínu mjöli. Það skulu vera ósýrðar, kringlóttar kökur blandaðar olíu eða ósýrt flatbrauð smurt olíu.
Sérhverja kornfórnargjöf þína skaltu salta. Þú skalt ekki láta salt sáttmála Guðs þíns vanta í þá kornfórn sem þú færir. Sérhverja gjöf þína skaltu færa fram til fórnar með salti.