Biblían 2007
|
| 1 |
| Drottinn talaði við Móse og sagði: |
| 2 |
| „Segðu við Ísraelsmenn: Sérhver Ísraelsmaður eða aðkomumaður á meðal ykkar, sem gefur Mólok barn sitt, skal deyja. Fólkið, sem býr í landinu, skal grýta hann. |
| 3 |
| Ég mun snúa augliti mínu gegn þeim manni sem gerir slíkt og uppræta hann úr þjóð sinni: Fyrst hann hefur gefið Mólok barn sitt hefur helgidómur minn saurgast og mitt heilaga nafn vanhelgast. |
| 4 |
| Líti fólkið í landinu undan þegar einhver gefur eitthvert barna sinna Mólok og það tekur hann ekki af lífi |
| 5 |
| mun ég snúa augliti mínu gegn þessum manni og ætt hans. Ég mun uppræta hann úr þjóð sinni ásamt öllum sem hórast eins og hann með Mólok. |
| 6 |
| Ég beini augliti mínu gegn hverjum þeim manni sem snýr sér til miðla og þeirra sem flytja spámæli frá öndum og ég mun uppræta hann úr þjóð sinni. |
| 7 |
| Helgið ykkur og verið heilagir því að ég er Drottinn, Guð ykkar. |
| 8 |
| Haldið lög mín og farið að þeim. Ég er Drottinn sem helgar ykkur. |
| 9 |
| Sérhver, sem bölvar föður sínum og móður, skal líflátinn. Vegna þess að hann hefur bölvað föður sínum og móður skal blóðsök hans koma yfir hann. |
| 10 |
| Sá maður, sem fremur hór með eiginkonu náunga síns, skal líflátinn, bæði hórkarlinn og hórkonan. |
| 11 |
| Leggist maður með eiginkonu föður síns berar hann blygðun föður síns. Þau skulu bæði líflátin. Blóðsök þeirra skal koma yfir þau. |
| 12 |
| Leggist maður með tengdadóttur sinni skulu bæði líflátin: Þau hafa framið blóðskömm og blóðsök þeirra skal koma yfir þau. |
| 13 |
| Leggist karlmaður með karlmanni eins og þegar lagst er með konu fremja þeir báðir viðurstyggilegt athæfi. Þeir skulu báðir líflátnir. Blóðsök þeirra skal koma yfir þá. |
| 14 |
| Taki maður konu og móður hennar sér fyrir eiginkonur er það blóðskömm. Hann skal brenndur í eldi ásamt konunum: Blóðskömm skal ekki eiga sér stað á meðal ykkar. |
| 15 |
| Hafi karlmaður samræði við skepnu skal hann tekinn af lífi. Þið skuluð einnig farga skepnunni. |
| 16 |
| Nálgist kona skepnu til þess að eiga við hana samræði skaltu lífláta konuna og skepnuna. Þau skulu líflátin. Blóðsök þeirra skal koma yfir þau. |
| 17 |
| Taki einhver maður systur sína, hvort sem hún er dóttir föður hans eða móður, og sér blygðun hennar og hún sér blygðun hans, er það hneisa. Þau skulu upprætt í augsýn landa sinna. Vegna þess að hann hefur berað blygðun systur sinnar skal hann taka á sig sekt sína. |
| 18 |
| Leggist maður með konu með tíðir og berar blygðun hennar hefur hann berað uppsprettu hennar og hún hefur sjálf berað uppsprettu blóðs síns. Þau skulu bæði upprætt úr þjóð sinni. |
| 19 |
| Þú skalt ekki bera blygðun móðursystur þinnar eða föðursystur því að hver sem það gerir hefur berað eigið hold. Hann skal taka á sig sekt sína. |
| 20 |
| Liggi maður með eiginkonu föðurbróður síns berar hann blygðun hans. Þau skulu taka á sig synd sína og deyja barnlaus. |
| 21 |
| Taki maður konu bróður síns er það saurgun: Hann hefur berað blygðun bróður síns. Þau skulu verða barnlaus. |
| 22 |
| Þið skuluð halda lög mín og reglur og fara eftir þeim svo að landið, sem ég leiði ykkur inn í til þess að setjast þar að, spýi ykkur ekki. |
| 23 |
| Þið skuluð ekki fylgja siðum þjóðanna sem ég hrek í burtu fyrir augum ykkar. Þær frömdu þetta allt svo að mér bauð við þeim. |
| 24 |
| Þess vegna sagði ég við ykkur: Þið skuluð taka land þeirra til eignar. Ég mun sjálfur fá ykkur það svo að þið getið tekið það til eignar, þetta land sem flýtur í mjólk og hunangi. |
| 25 |
| Þið skuluð því gera greinarmun á hreinum dýrum og óhreinum og óhreinum fuglum og hreinum. Þið skuluð ekki gera ykkur sjálfa viðurstyggilega með því að snerta eitthvert þessara dýra, fugla eða kvikinda sem skríða á jörðinni og ég hef ykkar vegna aðgreint sem óhrein. |
| 26 |
| Verið mér heilagir því að ég, Drottinn, er heilagur. Ég hef aðgreint ykkur frá þjóðunum til þess að þið séuð mín eign. |
| 27 |
| Þegar andi einhvers dauðs manns eða spásagnarandi er í einhverjum, hvort heldur það er karl eða kona, skulu þau tekin af lífi. Þau skulu grýtt; blóðsök þeirra skal koma yfir þau.“ |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/leviticus/020.mp3
27
20