Það sem sprettur sjálfsáið eftir uppskeru þína máttu ekki skera og þú mátt ekki tína vínber af óklipptum vínviðnum. Þetta skal vera hvíldarár fyrir landið.
Það sem landið gefur af sér hvíldarárið skal vera fæða handa ykkur, handa sjálfum þér, þræli þínum, ambátt þinni, kaupamanni þínum og aðkomumönnunum hjá þér.
Þannig skuluð þið kunngjöra helgi fimmtugasta ársins og boða lausn í landinu fyrir alla íbúa þess: Þetta skal vera ykkur fagnaðarár. Þá skal hver maður halda heim til jarðeignar sinnar, sérhver skal snúa heim til ættar sinnar.
Þegar þú kaupir af landa þínum á að miða verð við fjölda ára sem liðin eru frá fagnaðarárinu. Hann á að selja þér fyrir verð sem miðast við fjölda uppskeruára.
Því fleiri sem árin eru þeim mun hærra verð á hann að fá, því færri sem árin eru þeim mun lægra verð átt þú að krefja hann um því að hann selur þér tiltekið uppskerumagn.
Þegar þið sáið á áttunda árinu getið þið enn etið af gömlu uppskerunni, allt fram á níunda ár. Þið skuluð eta af gömlu uppskerunni þar til uppskera níunda ársins kemur.
Þegar ættbróðir þinn lendir í kröggum og þarf að selja eitthvað af jarðeign sinni skal það skyldmenni, sem stendur honum næst, gerast lausnarmaður hans. Hann skal leysa til sín það sem ættbróðir hans seldi.
skal hann telja árin frá því að kaupin voru gerð og endurgreiða kaupandanum fyrir þann tíma sem eftir er. Því næst getur hann farið aftur til jarðeignar sinnar.
En geti hann ekki aflað nægilegs fjár til að greiða honum skal jörðin, sem hann seldi, vera í hendi kaupandans til næsta fagnaðarárs. Á fagnaðarárinu verður hún leyst og hann getur aftur farið til jarðeignar sinnar.
En ef hann leysir það ekki til sín fyrir árslok verður þetta hús í víggirtri borg eign kaupandans og niðja hans. Það verður ekki leyst á fagnaðarárinu.
Ef einhver af Levítunum notar ekki endurkauparétt sinn verður það hús í borginni, sem er eign hans, leyst á fagnaðarárinu því að húsin í borgum Levíta eru eign þeirra á meðal Ísraelsmanna.
Þegar landi þinn lendir í kröggum og kemst ekki af í samfélaginu skaltu veita honum hjálp eins og aðkomumanni eða gesti svo að hann haldi lífi ykkar á meðal.
og þið getið látið þau ganga í arf til barna ykkar. Þið getið ævinlega látið þau vinna sem þræla. En landa ykkar, Ísraelsmenn, skuluð þið ekki beita valdi.
Þegar aðkomumaður eða gestur auðgast hjá þér en ættbróðir þinn lendir í kröggum og verður að selja sig aðkomumanninum eða leiguliðanum eða afkomanda aðkomumannsins
Hann og kaupandinn skulu telja árin frá árinu þegar hann seldi sig og til næsta fagnaðarárs. Söluverðið skal miðað við árafjöldann og hvert ár metið til launa daglaunamanns.