En ef sá sem vann heitið er í kröggum og getur ekki greitt matsverðið skal hann leiða fyrir prest þann sem heitið var. Skal presturinn ákveða matsverðið eftir efnum þess sem heitið vann.
Ekki má skipta á því sem gefið var og öðru. Hvorki má skipta á rýru dýri og vænu né vænu og rýru. Nú eru skipti höfð á skepnum og skulu þá vera heilagar bæði sú er látin er í skiptum og sú sem kemur í staðinn.
Ætli einhver að helga Drottni hluta af eignarlandi sínu skal matsverðið fara eftir því hversu miklu er hægt að sá í það. Einn kómer af byggi samsvarar fimmtíu siklum silfurs.
Helgi hann jörð sína eftir fagnaðarárið skal prestur reikna út verðið miðað við fjölda þeirra ára sem eftir eru til næsta fagnaðarárs og draga það frá matsverðinu.
Enginn má helga frumburði búfjár sem heyrir Drottni til því að þeir eru frumburðir. Hvort heldur um er að ræða frumburði nauta eða sauðfjár eru þeir eign Drottins.
En séu það frumburðir óhreinna dýra má kaupa þá lausa fyrir matsverð og skal þá bæta fimmtungi þess við. Ef þeir verða ekki leystir skal selja þá fyrir matsverðinu.
Ekkert, sem bannhelgi hvílir á, ekkert af eigum þess manns sem helgar þær Drottni með banni, hvorki mann, búfé né jarðeign, má selja eða leysa: Allt sem bann hvílir á er háheilagt. Það er eign Drottins.
Ekki skal gera neinn mun á vænu dýri og rýru og ekki skipta á neinu. Sé það gert verður bæði það sem skipt er á og það sem sett er í þess stað heilagt: Það má ekki leysa.“