En eigi hann ekki fyrir því, er þú metur, þá skal leiða hann fyrir prest, og prestur skal meta hann. Eftir efnahag þess, er heitið gjörir, skal prestur meta hann.
Eigi má hafa kaup á því eða skipta því, vænu fyrir rýrt eða rýru fyrir vænt. Nú eru skipti höfð á skepnum og skulu þær vera heilagar, bæði sú, er látin er í skiptin, og sú, er fyrir kemur.
Nú helgar maður Drottni hús sitt að helgigjöf, og skal þá prestur virða það eftir því sem það er gott eða lélegt til. Skal standa við það, sem prestur metur.
En helgi hann land sitt eftir fagnaðarár, þá skal prestur reikna honum verðið eftir árunum, sem eftir eru til fagnaðarárs, og skal þá dregið af mati þínu.
þá skal prestur reikna fyrir hann, hve mikil upphæðin verði eftir mati þínu til fagnaðarárs, og skal hann þann dag greiða það, er þú metur, svo sem helgigjöf Drottni til handa.
En frumburði af fénaði, sem Drottni heyra, fyrir því að þeir eru frumbornir, skal enginn helga. Hvort heldur er nautgripur eða sauðkind, þá heyrir það Drottni.
En sé það af hinum óhreina fénaði, þá skal hann leysa það eftir mati þínu og gjalda fimmtung umfram, en sé það ekki leyst, skal selja það eftir mati þínu.
Þó skal eigi selja eða leysa nokkurn hlut bannfærðan, það er einhver helgar Drottni með bannfæringu af einhverju því, er hann á, hvort heldur er maður, skepna eða óðalsland hans. Sérhver hlutur bannfærður er alhelgaður Drottni.
Skal eigi skoða, hvort hún sé væn eða rýr, og eigi hafa skipti á henni. En séu höfð skipti á henni, þá skal bæði hún og sú, er fyrir kemur, vera heilög. Eigi má leysa hana.”