Minnstu þess, þjóð mín, sem Balak Móabskonungur vélaði gegn þér og svaranna sem Bíleam Beórsson veitti honum. Minnstu fararinnar frá Sittím til Gilgal. Þá skilurðu réttlætisverk Drottins.
Hefur Drottinn þóknun á þúsundum hrúta og tugþúsundum lækja af ólífuolíu? Á ég að fórna frumburði mínum fyrir synd mína, ávexti kviðar míns fyrir misgjörðir mínar?
Þú munt eta en þó ekki seðjast og sulturinn mun sverfa að þér. Því sem þú hyggst forða undan færðu ekki bjargað, og það sem þú bjargar ofursel ég sverði.
Þú hefur farið að lögum Omrís og háttum Akabs ættar, líferni þeirra hafið þér tamið yður. Því legg ég borgina í auðn og geri íbúa hennar að athlægi. Þér munuð baka yður fyrirlitningu þjóðar minnar.