Biblían 2007
|
| 1 |
| Sjá, sá dagur kemur frá Drottni að herfangi þínu verður skipt í þér miðri. |
| 2 |
| Ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar gegn Jerúsalem, borgin verður tekin, húsin rænd og konunum nauðgað. Helmingur borgarbúa verður herleiddur en ekki verður upprættur sá hluti þeirra sem eftir verður í borginni. |
| 3 |
| Þá mun Drottinn fara og berjast við þessar þjóðir eins og hann gerir á orrustudegi. |
| 4 |
| Og á þeim degi munu fætur hans staðnæmast á Olíufjallinu austur af Jerúsalem. Og Olíufjallið mun klofna í miðju frá austri til vesturs. Þar verður firnavíður dalur er helmingur fjallsins færist í norður en hinn í suður. |
| 5 |
| Og þið skuluð flýja í fjalldal minn, en dalurinn nær allt til Asal, flýja eins og þið flýðuð jarðskjálftann á dögum Ússía Júdakonungs. En Drottinn, Guð minn, mun koma og með honum allir heilagir. |
| 6 |
| Á þeim degi verður hvorki hlý sólarbirta né svalt mánaskin, |
| 7 |
| það verður samfelldur dagur og á því kann Drottinn einn skil. Ekki dagur, ekki nótt og jafnvel að kvöldinu verður bjart. |
| 8 |
| Á þeim degi mun ferskt vatn streyma frá Jerúsalem, að hálfu í austurhafið og að hálfu í vesturhafið, jafnt sumar sem vetur. |
| 9 |
| Drottinn mun þá verða konungur yfir veröldinni allri. Á þeim degi mun Drottinn verða einn og nafn hans eitt. |
| 10 |
| Allt landið verður slétt eins og Jórdanardalur allt frá Geba til Rimmon suður af Jerúsalem, en hún mun gnæfa hátt, óbifanleg á stað sínum, frá Benjamínshliði, þangað sem fyrra hliðið var, allt að hornhliðinu og frá Hananelturni til konungsvínþrónna. |
| 11 |
| Menn munu búa þar og bannfæring kemur ekki yfir hana framar. Jerúsalem mun verða óhult. |
| 12 |
| Yfir allar þjóðir sem herjuðu á Jerúsalem mun Drottinn senda plágu: Hann mun láta hold þeirra rotna meðan þeir standa enn í fæturna, augu þeirra lætur hann morkna í augnatóttunum og tunguna visna í munni þeirra. |
| 13 |
| Á þeim degi mun skelfingin hvolfast yfir þá frá Drottni, þeir munu þrífa hver í annars hönd og hver höndin verður uppi á móti annarri. |
| 14 |
| Jafnvel Júda mun berjast með gegn Jerúsalem. Þá verður auði grannþjóðanna safnað saman, ókjörum af gulli, silfri og klæðum. |
| 15 |
| Og sama plágan mun einnig ganga yfir hesta, múldýr, úlfalda, asna og allar skepnur í þeim búðum. |
| 16 |
| En allir sem eftir lifa af öllum þjóðum sem herjað hafa á Jerúsalem munu árlega fara þangað til að falla fram fyrir konunginum, Drottni allsherjar, og til að halda laufskálahátíðina. |
| 17 |
| En engin regnskúr mun koma yfir þá menn af kynkvíslum jarðarinnar sem ekki fara upp til Jerúsalem til að falla fram fyrir konunginum, Drottni allsherjar. |
| 18 |
| En fari kynkvísl Egyptalands ekki þangað mun sama plágan þó ekki ganga yfir hana og Drottinn lætur koma yfir þær þjóðir sem ekki fara þangað til að halda laufskálahátíðina. |
| 19 |
| Þetta skal verða hegning Egypta og allra þeirra þjóða sem ekki fara þangað til að halda laufskálahátíðina. |
| 20 |
| Á þeim degi verður letrað á bjöllur hestanna: „Helgaður Drottni“ og katlarnir í húsi Drottins munu verða jafnstórir og fórnarskálarnar fyrir altarinu. |
| 21 |
| Og sérhver ketill í Jerúsalem og Júda verður helgaður Drottni allsherjar og allir þeir sem færa fórnir munu koma og taka einhvern þeirra til að sjóða í. Á þeim degi verða engir mangarar framar í húsi Drottins allsherjar. |
|
| Vista Skýringar |
https://beblia.bible:81/BibleAudio/icelandic/zechariah/014.mp3
14
14